Ég veit að mörgum finnst það óskynsamlegt að vilja ekki binda sig í vinnu á einum stað. Það er heldur ekkert gallalaust. Það merkir að stundum verður maður bara vessgú að taka því sem býðst þá stundina og maður getur ekkert alltaf reiknað með góðum launum. Verður líka svolítið flóknara ef maður er á föstu, þeir hafa svo mikla öryggisþörf þessar elskur. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Auglýsing
Óskað er eftir kandidat í hlutverk kynlífsviðfangs. Skilyrði fyrir framlögn umsóknar eru eftirfarandi: Halda áfram að lesa
Bjánakeppur
Í alvöru talað; hvað er að manni sem sendir skuldbindingarlausri hjásvæfu sinni sms með hamingjuóskum um daginn, á Valentínusardag, 3 dögum eftir að hann segir henni að hann sé spenntur fyrir annarri? Halda áfram að lesa
Plús vélsmiðjuvinna
Ég hlýt að vera heppnasta manneskja í heimi. Í hvert sinn sem ég sé fram á blankheit undir þolmörkum fjölskyldunnar, koma aukaverkefni hlaupandi til mín af sjálfsdáðum. Er að merja síðasta hluta útborgunarinnar en komin feit skuld á kortið sem reynist svo ætla að reddast eins og allt annað. Halda áfram að lesa
Dramlaust á ilmsápustöðinni
Zorglúbb er í bænum og kom í heimsókn í dag. Vííí! Hann tilheyrir þessum þrönga flokki karlmanna sem ráða við að sitja á rúmstokknum, án þess að reikna átómatískt með einhverju falleríi. Sem styður þá tilgátu mína að hann sé alls ekki falli. Svo er hann líka ágætt skáld og það er ekki leiðinlegt. Halda áfram að lesa
Karlmennska er ákveðin fötlun
Karlmennska er ákveðin fötlun. Í rauninni ættu 80% karlmanna að vera á fallabótum og í endurhæfingu eða einhverskonar meðferð. Halda áfram að lesa
Meiri vinna vííí!
Það eru ekki örlög mín að verða atvinnulaus. Að vísu lítið að gera í textavinnu þessa dagana en frá og með deginum í dag tek ég við bókhaldi fyrirtækisins. Ég kann að vísu ekkert á bókhald en þar sem ég þekki ótrúlegustu fífl sem kunna að reikna út laun og skila virðisaukaskatti hlýt ég að geta þetta (eins og allt annað sem ég tek mér fyrir hendur). Halda áfram að lesa
Bissniss
Sonur minn bissnissmaðurinn er að plana mikið gróðabrask. Hann vil að við bregðum okkur til Kúbu og kaupum miklar birgðir af kúbönskum vindlum til að selja hér heima. Telur engar líkur á að tollurinn fari að skipta sér af því.
Getur verið að ást mín á hinum illa Mammóni sé arfgeng?
… og ég dey ef hann vaknar
Þetta er nefnilega ekki bara spurning um hvað mann langar að gera, heldur líka um forsendurnar. Þær stjórna því að töluverðu leyti hvað það má kosta þegar upp er staðið. Halda áfram að lesa
Spádómur
Í gær fann ég gamla dagbók frá sokkabandsárunum. Hér á eftir fer kafli sem ég skrifaði í mars 1994. Halda áfram að lesa
Þjóðbúningaþjófurinn -sápuópera í einum margendurteknum þætti
Móðir mín dramadrottningin er flestu fólki lunknari við að láta dröm endast árum og jafnvel áratugum saman. Þannig hefur t.d. sápuóperuþátturinn Þjóðbúningaþjófurinn enst henni til nánast samfelldrar geðbólgu allt frá því að hún amma mín dó, vorið 1998 og fram til dagsins í dag. Halda áfram að lesa
prrr
Maðurinn sem heldur að hann elski mig gerði enn eina tilraun til að vekja áhuga minn í gær. Ég sagði honum að ég væri búin að fá yfir mig nóg af því að leyfa mér að þykja vænt um eintök af þessari stórfurðulegu skepnu, karlmanninum, vegna þess stóra galla á tegundinni að verða yfir sig ástfanginn og detta svo skyndilega niður á jörðina aftur og slíta sambandinu án nokkurrar rökrænnar skýringar. Halda áfram að lesa
Blót
Það er ekki líkt mér að sofa til hálftólf á sunnudegi en allt hefur sínar skýringar; vér kviðmágkonur blótuðum Þorra í gærkvöld. Rauði Folinn kom vitanlega með enda hefð fyrir því allt frá barnaskólaárum að bjóða honum einum karlmanna í stelpnapatrý. Halda áfram að lesa
Bróðir minn Mafían
Bróðir minn Mafían er einkar siðprúður ungur maður. Einhverju sinni vaknaði hann við hliðina á konu sem hann hafði kynnst á öldurhúsi kvöldið áður. Stúlkan vaknaði áður en honum tækist að laumast fram úr, svona líka hamingjusöm og stakk upp á því að þau færu út í bakarí og keyptu rúnstykki. Bróðir minn Mafían pýrði á hana annað augað. Halda áfram að lesa
Hvað má það kosta?
Minn kæri
Ég geri mér ekki alveg ljóst hvort þú spyrð í einlægni eða aðeins til að gera lítið úr mér. Það skiptir ekki öllu máli, ég skal svara þér. Ég skal reyna að útskýra hvers vegna ég er „alltaf að púkka upp á einhverja lúsera“. Halda áfram að lesa
Perr
Páll pervert bauð mér í kaffi í sérlegri perrastíu sinni eftir vinnu í dag. Hann sýndi mér myndir af nýju, fínu höllinni sinni en sýndi enga tilburði til að perra mig. Og ég sem fór í perradeild Húsasmiðjunnar og fjárfesti í nýjum hundataumbandsfestingum. Grey ég. Hann er líklega að verða gamall. Nema konan hans sé búin að hýða úr honum allar pervasjónir. Halda áfram að lesa
Morgundrama
Ástmögur minn kom ekki til dyranna eins og hann var klæddur þegar ég bankaði upp á kl 8:20 í morgun. Enda er hann prúðmenni og óvíst að viðkvæmar sálir á leið til vinnu hefðu tekið því með æðruleysi að þurfa að berja karlmennsku hans augum á stigaganginum svo árla morguns. Hann á ekki slopp og kom því fram þokkalega úfinn með handklæðisbleðil fyrir sínu allra helgasta. Halda áfram að lesa
Vinalínan
Sonur minn Kærleiksblómið er hættur í skóla (enda er aðalmarkmið grunnskólans að kvelja hann persónulega með ýmsum tilgangslausum námsgreinum sem hvorki tengjast landbúnaði né tónlist) og búinn að fá sér vinnu. Hann svarar í símann hjá vinalínunni. Halda áfram að lesa
Þorrablót
Grænmetisætur eru merkilegur og viðkvæmur þjóðfélagshópur sem nauðsynlegt er að njóti ýmissa forréttinda, skilnings, verndar og samúðar. Ólíkt alkóhólistum, sjálfsvorkunnarsjúklingum og öðrum aumingjum sem standa í þeirri staðföstu trú að frumtilgangur veraldarinnar sé sá að hlaupa eftir duttlungum þeirra, hefur þessum merkilega hópi tekist að telja þorra þjóðarinnar trú um að sjálflægni þeirra sé rétt, góð og heilsusamleg og að þar með eigi allir að snobba fyrir sérþörfum þeirra. Þannig er t.d. engu líkara en að það þyki eitthvað fínt að vilja ekki kjöt en hinsvegar nánast dónalegt að vilja ekki tómata. Halda áfram að lesa
Leigusál
Eva: Viltu leika við mig eftir vaktina?
Bruggarinn: Leika við þig? Hvað viltu gera?
Eva: Við leikum að ég sé Djöfullinn. Þú selur mér sál þína á fimmhundruðkall og þar með verður þú að gera allt sem ég segi þér.
Bruggarinn: Ertu klikkuð? Ég sel ekki sál mína á fimmhundruð kall, ég vil fá fimmtánhundruð. Halda áfram að lesa