Jón Baldvin Hannibalsson segist hafa fengið þá skýringu á afturköllun boðs um að halda gestafyrirlestra við HÍ að svokallaðir „kynjafræðingar“ hafi mótmælt ráðningu hans skriflega. Ég bað forseta félagsvísindasviðs um afrit af þessu mótmælabréfi en fékk það svar að hann vissi ekki til þess að slíkt plagg væri til. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Jón Baldvin
Einhliða umfjöllun?
Í þessari viku gekk fram af mér. Tvisvar. Fyrst þegar ég sá því haldið fram, í langri umfjöllun Nýs lífs um upplifun Guðnýjar Rósar Vilhjálmsdóttur af Agli Einarssyni og Guðríði Jónsdóttur, að aðeins önnur hlið málsins (þ.e. hlið Egils) hefði komið fram. Halda áfram að lesa
Stjórnar Hildur Lilliendahl mannaráðningum við HÍ?
Ætli sé til ein manneskja í veröldinni sem hefur náð tvítugu án þess að þjást af völdum annarra? Ætli sé til ein manneskja í veröldinni sem hefur náð tvítugu án þess að valda öðrum þjáningum? Halda áfram að lesa
Að taka afstöðu
Uppskrift að áburði:
Finnum gamlan, botnfallinn skít. Hrærum rækilega upp í honum og dreifum soranum sem víðast svo öruggt sé að drullan lendi í sem flestum hálfgrónum sárum.
Jafnvel þótt útilokað sé að eyða leðjunni og eina leiðin til að hreinsa vatnið sé sú að leyfa henni að setjast, höldum þá áfram að hræra upp í skítnum. Berum svo mykjuna á túnið. Þannig grænkar beitiland sorpblaðamennskunnar.
Halda áfram að lesa