Um daginn spjallaði ég við konu sem ólst upp í Afghanistan. Þegar hún var 14 ára hafnaði hún harðfullorðnum vonbiðli. Nú er hún komin fram yfir síðasta söludag en fjölskyldan er svo stálheppin að hafa fundið mann sem er tilbúinn til að taka hana þrátt fyrir þann augljósa galla að vera komin yfir 25 ára aldur. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Píkuhár, augnhár og nýhreintrúarstefna
Hvert sem ég fer, sé ég fallegar, ungar konur, með augnhár sem minna helst á skítuga kústa. Af hverju í ósköpunum gera þær þetta? Vita þær ekki að dæmi eru um að snyrtivörur hafi valdið sýkingum í augum, einkum ef notaðar eru gamlar vörur sem margir hafa notað eða ef stúlkan veit ekki almennilega hvað hún er að gera? Halda áfram að lesa
Engin eftirspurn eftir afmellunarmeðferð?
Er það semsagt rétt skilið að þetta sé ekki lengur vændisathvarf heldur bara athvarf fyrir konur sem hafa orðið fyrir ýmsum skakkaföllum? Er hægt að fá nákvæmar tölur um það hversu margar konur hafa sóst eftir afmellunarmeðferð? Halda áfram að lesa
Þakkaðu það klámvæðingunni
Þrettán hópnauðganir og skýringin er náttúrulega einföld; það er klámvæðingin ógurlega sem á sökina. Óþarft er að styðja þá kenningu nokkrum rökum, andstæðingar tjáningarfrelsisins eru einfaldlega búnir að ákveða að klám sé undirrót alls ills, einkum ofbeldis. Enda eru þær hópnauðganir sem tíðkast í óklámvæddum samfélögum mun huggulegri en hinar ofbeldisfullu hópnauðganir vestrænna klámhunda, sem eflaust væru bara að spila bingó á laugardagskvöldum ef ekki væri allt þetta klám. Og ekki var konum nú nauðgað á miðöldum, meðan klám þreifst hvergi nema kannski í klaustrum -eða hvað? Halda áfram að lesa
Vegna greinar Auðar Alfífu um staðgöngumæðrun
Af hverju ætti kona að leggja eigin hamingju til hliðar þótt hún gangi með barn fyrir annað fólk? Eru óléttar konur óhamingjusamari en aðrar? Er eitthvað sem bendir til þess að staðgöngumæður séu óhamingjusamari en aðrar konur? Hefur einhver lagt til að staðgöngumæðrum á Íslandi verði búin sömu skilyrði og á Indlandi? Halda áfram að lesa
Eitt komment
Ég gef lítið fyrir þær skoðanir MSH sem hér birtast. Mér finnst hinsvegar að feministar megi alveg skoða hvernig kvenfjandsamleg viðhorf skína í gegnum skrif þeirra. Það eru nefnilega helst þeir sem kenna sig við feminisma sem vilja takmarka frelsi kvenna til að ráða yfir sínum eigin líkama, það eru helst feminstar sem líta á konur sem ósjálfstæðar og óábyrgar verur og það er nú aðallega þessvegna sem mér mislíkar sá feminismi sem mest er áberandi í umræðunni í dag. Halda áfram að lesa
Eru þeir sem nauðga og bera ljúgvitni venjulegt fólk?
Ég hef haldið því fram að þrátt fyrir að nokkuð hátt hlutfall kvenna hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi, merki það ekki að nauðganir séu viðurkennd hegðun meðal venjulegra karla. Halda áfram að lesa
Hugtakaskýring handa lesendum leyniskyttunnar
Þessi bloggari kærir sig ekki um að heyra álit annarra og leyfir því ekki umræður á blogginu sínu en þar sem vera má að einhverjir þeirra sem hafa velt sömu hugtökum fyrir sér hafi meiri áhuga á samræðu en einræðu, skal ég taka að mér að útskýra þessi hugtök sem að hobbýfemisma undanskildum falla undir það sem ég kalla „dólgafeminisma“ (vulgar feminism) þ.e. feminisma sem setur hugsjónina ofar heilbrigðri skynsemi og valtar yfir rétt annarra. Halda áfram að lesa
Viðtökurnar við SCUM
Valerie Solanas
Ég var að lesa SCUM, fyrst nú, hef aldrei lesið ávarpið í heild áður. Það væri áhugavert að sjá viðbrögðin ef einræðu um ógeðslegt eðli og innræti kvenna yrði hampað sem listaverki. Halda áfram að lesa
„Venjulegir menn“
Hverjir eru þessir venjulegu menn?
Við gætum líka búið til mun stærra vandamál og normaliserað ofbeldi með því að neita að gera greinarmun á venjulegum karli og nauðgara.
Vill einhver skilgreina fyrir mig hvað felst í því að vera „venjulegur“ karlmaður. Var það venjulegur karlmaður sem réðist inn til konu í Vesturbænum að næturþeli, ógnaði henni með hníf og nauðgaði henni? Var það venjulegur karlmaður sem tók hrottalegt kynferðisofbeldi gagnvart kærustunni sinni upp á myndband og drap svo vinkonu hennar sem studdi hana í því að kæra hann? Eru það venjulegir menn sem sitja í fangelsi dæmdir fyrir barnanauðganir?
Eða er orðið „kynferðisofbeldi“ orðið gersamlega merkingarlaust, farið að ná yfir ágengni sem fólk með snefil af virðingu fyrir raunverulegum fórnarlömbum flokkar fremur sem dónaskap og uppáþrengjandi framkomu?
Það er vissulega rétt að þú sérð það ekki á manni hvort hann er líklegur til ofbeldisverka fjarri augum umheimsins. Þar fyrir er stórhættulegur leikur að tala eins og hvaða karlmaður sem er sé líklegur til þess að nauðga og lemja. Í Bandaríkjunum er þessi paranoja svo langt gengin að grunnskólabörn eru leidd fyrir dómara í fangagalla og járnum, ákærð og dæmd fyrir kynferðisofbeldi.
Það fletur út merkingu orðanna og gerir lítið úr ofbeldisverki þegar öll ósæmileg framkoma er sett undir sama hatt.
-Að kalla ósanngjarna (eða jafnvel réttmæta) gagnrýni eða tilviljanakenndan hrekk einelti, gerir lítið úr einelti.
-Að tala um rifrildi þar sem aðilar eru jafnvígir sem andlegt ofbeldi, gerir lítið úr andlegu ofbeldi.
-Að tala um uppáþrengjandi framkomu og káf sem einfalt mál er að verjast sem kynferðisofbeldi, gerir lítið úr þeim hryllilegu málum þar sem um er að ræða raunverulegt fórnarlamb sem á engar undankomu auðið. Og það er því miður gert, með tilheyrandi upphrópunum um óbætanlega skaða og jafnvel sálarmorð.
Ef við stöldrum ekki við og hugsum út í afleiðingarnar af því að tala eins og það sé samasemmerki milli karlmanns og nauðgara þá endar það með því að kynferðisleg samskipti verð körlum ennþá hættulegri en þau eru konum í dag og að eðileg forvitni barna verður til þess að litlir drengir verða gerðir að kynferðisglæpamönnum. Við leiðréttum ekki óréttlæti gagnvart konum með því að glæpvæða karlkynið. Við gætum hinsvegar búið til mörg illleysanleg vandamál með því.
Í pistlinum sem ég tengdi á hér að ofan segir Halla: „Þetta eru ekki örfáir sjúkir einstaklingar sem nauðga, þetta er fjöldi „venjulegra“ karla…“ Og hún er ekkert ein um að setja alla karla undir sama hatt, það muna allir eftir Askasleiki. Í Svíþjóð er þetta ógeðsviðhorf svo langt gengið að fyrir nokkrum árum vildu feministar láta sétja sérstakan ofbeldisskatt á alla karla. Það er hinsvegar ekkert sem bendir til þess að fjöldi venjulegra manna nauðgi konum og lemji þær. Þvert á móti virðast sömu mennirnir skilja eftir sig langa lest þolenda.
Það er flókið að verjast káfi ef káfandinn er ofbeldismaður en flestir káfendur eru bara klaufar sem kunna ekki að lesa líkamstungumál en skilja hinsvegar mæta vel hvað kona á við þegar hún segir honum að það myndi gleðja sig meira ef hann gerði mannkyninu þann greiða að ganga fyrir björg. Ég er innan við 150 á hæð. Ég hef krafta á við 9 ára barn, ég hef verið á lausu í samtals 18 ár síðustu 23 árin og ég get talið á fingrum annarrar handar hversu oft ég hef þurft meira en fremur freðýsulega framkomu til að losa mig við uppáþrengjandi karlmann. Það er að sjálfsögðu hægt að koma sér þægilega fyrir í hlutverki hins eilífa fórnarlambs með því að ganga út frá því að karlinn muni ganga í skrokk á manni ef maður hafnar honum eða skaða mann í krafti valds síns. Með sama þankagangi myndi maður heldur ekki standa á rétti sínum ef vinnuveitandi bryti á manni, af því að hann gæti orðið fúll, fundið upp á því að láta mann vinna óvinsæl verkefni eða jafnvel sagt manni upp. Maður lætur ekki bara vaða yfir sig af því að það er hugsanlegt að það kæmi manni í verri stöðu.
Það er ömurlegt gagnvart þolendum grófs ofbeldis að setja alla áreitni og misnotkun undir sama hatt og stórfelldar líkamsárásir. Þeir sem endilega vilja gera allar konur að passívum fórnarlömbum, kjósa þó vitanlega að túlka það viðhorf að konur beri einhverja ábyrgð á sínum eigin viðbrögðum þannig að þar með sé maður að leggja blessun sína yfir kynferðislega áreitni.