Hvað leituðu margir til Eflingar á síðasta ári vegna starfa sinna hjá ríki og sveitarfélögum? Hvað leituðu margir útlendingar til Alþjóðahúss á síðasta ári vegna gruns eða fullvissu um að væri verið að brjóta á þeim á einhvern hátt?
Snilldaraðgerð
Jamm. Um að gera í bullandi atvinnuleysi að eyðileggja möguleika nektardansmeyja og annarra kvenna í kynlífsþjónustu, á því að hafa ofan í sig öðruvísi en í gegnum umboðsmann sem hefur sambönd við stórlaxa, smákrimma og aðra sem er sama hvaða lög gilda í landinu.Þessi löggjöf mun alveg fæla karla frá því að kaupa sér kynlífsþjónustu. En aðeins þá karla sem eru löghlýðnir og tillitssamir og þá sem leita í svona þjónustu vegna einmanaleika eða sérþarfa. Óreglumenn og fautar munu hinsvegar glaðir borga einhverjum öðrum karli myndarlega upphæð sem færi í vasa stúlkunnar ef hún ætti einhverja möguleika á að útvega sér viðskiptavini sjálf. Feministar, þið eruð fávitar.
Þú mátt alveg halda að þú sért eitthvað
Aldrei skrifa neitt um karlmann nema hann sé uppspuni frá rótum. Það kitlar svo í þeim hégómagirndina að fá svoleiðis athygli, sagði vinkona mín og ég hef svosem heyrt þetta áður. Halda áfram að lesa
Mikið fer þessi umræða í taugarnar á mér
![]() |
Sigur kvenna og samkynhneigðra |
Hvaða andskotans máli skiptir það hverjum forsætisráðherra sefur hjá og hvort hann er með typpi eða píku? Af hverju í fjáranum hafa fjölmiðlar meiri áhuga á kynferði og einkalífi stjórnmálamanna en þeim ákvörðunum sem þeir taka fyrir hönd fjöldans?Einhversstaðar las ég að aðilar í ferðaþjónustunni hefðu hug á að makaðssetja landið fyrir samkynhneigða! Halda áfram að lesa
Klámgeiri(nn) á að sitja við sama borð og annar kapítalismi
Mér finnst þetta fullkomlega sanngjörn krafa, þ.e.a.s. á meðan ríkið er tilbúið til að styrkja bæði umhverfisspillandi og orkufrekan iðnað og alls kyns kapítalískan hégóma. Ég sé ekki eðlismun á því að styrkja framleiðslu á myndum af konum að glenna á sér dýrðina og framleiðslu á t.d. snobbbílum. Best væri ef ríkið styrkti hvorugt en það er allavega sanngjarnt að allir skíthælar njóti jafnrar virðingar.
Vantar eina blaðsíðu eða tvær
Hvað segir geðbólgan yfir þjóðhátíðartexta Baggalúts okkur um afstöðu þessa hóps, sem fordæmir hann, til listarinnar? Halda áfram að lesa
Glæpur án fórnarlambs
Af hverju er bannað að vera öðrum undirgefinn? Auðvitað á að vera bannað að kúga aðra en ef ég ákveð sjálf að hlýða manninum mínum, og hann er til í að taka að sér að bera ábyrgð á mér, sjá fyrir mér og segja mér fyrir verkum hvar er þá fórnarlambið í þeim glæp? Ef konan hefur ekki valið sér þetta hlutskipti sjálf, væri þá ekki nær að refsa þessum karlmönnum sem undiroka hana?
Börn eru oftast foreldrum sínum undirgefin. Á þá ekki að synja þeim um ríkisborgararétt líka?
Glætan spætan að þetta snúist um lög eða siðferði.
![]() |
Undirgefni samræmist ekki frönskum gildum |
Borubleiking
Af og til kemst ég að þeirri niðurstöðu að nefið á mér sé of stórt, brjóstin of lítil, lærin of þykk … Þessar niðurstöður eru ekki bara eitthvað rugl í hausnum á mér, þær eru fengnar með samanburðarrannsóknum. Ég horfi á fagrar konur og ég sé lítil, snotur nef, stór, hvelfd brjóst og grönn, slétt læri. Ég horfi, skoða, dreg ályktun; hlutföll mín önnur en hjá súpermódeli; ergó eitthvað er of. Halda áfram að lesa
Leitið og þér munuð finna – allsstaðar
Mér finnst það gott mál og virðingarvert að leita uppi kúgað fólk og hjálpa því. Og já, ég er alveg viss um að þrælahald viðgengst hér á landi sem annarsstaðar. Ég hef m.a.s. séð það sjálf. Að vísu ekki í vændisgeiranum heldur á veitingahúsi. Ég gerði tilraun til að klaga það en var sagt að þrælarnir yrðu að kvarta sjálfir til að hægt væri að gera eitthvað. Halda áfram að lesa
…og gettu nú, sagði Sfinxin
-Hvernig myndirðu lýsa nútíma Íslendingnum? spurði túristinn, sem hafði hugmyndir sínar um land og þjóð fyrst og fremst úr fornritunum.