Álfheiður Ingadóttir vill láta birta nöfn vændiskúnna. Hún er svosem ekkert sú fyrsta sem viðrar þá skoðun og við fyrstu sýn er það undarleg ákvörðun að leyna nöfnum brotamanna í einum og mjög afmörkuðum málaflokki. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Kyn, ofbeldi og réttarkerfið
Hvar eru öll þessi dæmigerðu sýknumál?
Árum saman hneykslaðist ég á öllum þessum sýknudómum í kynferðisbrotamálum og öllum málunum sem vísað er frá. Halda áfram að lesa
Kvað hún brotaþola hafa uppfyllt öll skilyrði …
Haustið 2009 var lögreglumaður á Suðurnesjunum kærður fyrir nauðgun. Hann var síðar ákærður en sýknaður. Hann segir sögu sína hér. Halda áfram að lesa
Frumvarp um öfuga sönnunarbyrði er þegar komið fram
Þegar ég byrjaði á þessari pistlaröð, hafði ég áhyggjur af því að Íslendingar myndu smásaman fikra sig í sömu átt og Bretar, og að lokum snúa sönnunarbyrðinni við. En ég vissi ekki þá hversu langt þetta er gengið. Sjáið þetta. Sjáið hvað er að gerast. Halda áfram að lesa
Er karllægni réttarkerfisins stórt vandamál?
Ég get vel skilið þá sem afneita hættunni á því að sönnunarbyrði í kynferðisbrotamálum verði færð yfir á sakborning. Mér finnst erfiðara að skilja þá sem gera sér grein fyrir hættunni en finnst bara allt í lagi að taka áhættu á að saklausir menn séu dæmdir. Auðvitað reyna þeir sem eru fylgjandi öfugri sönnunarbyrði að gera lítið úr hættunni með innistæðulitlum fullyrðingum, t.d. þessari:
Áfallastreituröskun sannar ekki kynferðisbrot
Þeir sem gagnrýndu fyrsta pistil minn í þessari röð, hafa ýmist afneitað því að nokkur hætta sé á að Íslendingar færi sönnunarbyrðina yfir á sakborning, eða borið því við að þær aðferðir sem verið er að innleiða í því skyni, séu eðillegar og sjálfsagðar. Halda áfram að lesa
Jú, öfug sönnunarbyrði viðgengst meðal vestrænna þjóða
Um daginn skrifaði ég pistil sem olli miklum titringi enda þótt flestir sem hneyksluðust á honum segðust vera mér sammála um það sem skiptir máli, þ.e. að ekki megi færa sönnunarbyrðina í kynferðisbrotamálum yfir á sakborning. Halda áfram að lesa
Óþarfi að vera með dólg?
Þegar ég skrifaði þennan pistil, var ég að hugsa um að bæta við spurningu um það hversu langt þess væri að bíða að Stígamótagengið færi að skilgreina börn sem kynferðisglæpamenn. Ég sleppti því. Hugsaði sem svo að það væri óþarfi að vera með dólg, þótt ég sé mótfallin því að aðstoð við þolendur ofbeldis sé nánast alfarið í höndum einkaaðila. Halda áfram að lesa
Gefum nauðgaranum rödd
ENGINN hefur talað fyrir öfugri sönnunarbyrði, svo hversvegna í ósköpunum er Eva að búa til vandamál?
Jú ég skal segja ykkur það. Í fyrsta lagi er ég ekki að búa til vandamál heldur að leita farsælli lausna á raunverulegum vandamálum en ég kem nánar að því síðar. Afgreiðum fyrst spurninguna um það hvort sé kannski eitthvað til í því að einhverjum finnist öfug sönnunarbyrði í kynferðisbrotamálum góð hugmynd. Halda áfram að lesa
Engin hætta á að sönnunarbyrðinni verði snúið
Ég vona að þessi pistill veki umræðu, hugsaði ég um leið og ég klikkaði á „publish„. Það gekk eftir. Halda áfram að lesa