Kjellingar eru konum verstar

Ég vinn á kjellingavinnustað. Við sem vinnum við aðhlynningu erum 12-15 á vakt daglega og á hverjum einasta degi tilkynnir einhver kjellinganna veikindaforföll. Skjólstæðingarnir sem flestir eru á aldrinum 85-95 ára, eru hinsvegar ekkert veikir. Reyndar hefur einn af þessum 26 verið nokkra daga í rúminu síðasta mánuðinn auk þess sem einn beinbotnaði. Halda áfram að lesa →

Einhliða umræða um kynlífsiðnað

sexwork4

Ég hef nokkrum sinnum orðið fyrir því að þeir sem eru mér ósammála um klám- og kynlífsgeirann telja að skoðanir mínar beri þess merki að ég viti ekki, eða trúi því ekki, að kúgun og glæpir tíðkist í kynlífsiðnaði. Ég hef áður áður komið inn á tengsl kapítalisma og vændis en líklega er ástæða til að skýra nánar hvað ég er að fara. Halda áfram að lesa →

Snilldaraðgerð

sexworkJamm. Um að gera í bullandi atvinnuleysi að eyðileggja möguleika nektardansmeyja og annarra kvenna í kynlífsþjónustu, á því að hafa ofan í sig öðruvísi en í gegnum umboðsmann sem hefur sambönd við stórlaxa, smákrimma og aðra sem er sama hvaða lög gilda í landinu.Þessi löggjöf mun alveg fæla karla frá því að kaupa sér kynlífsþjónustu. En aðeins þá karla sem eru löghlýðnir og tillitssamir og þá sem leita í svona þjónustu vegna einmanaleika eða sérþarfa.  Óreglumenn og fautar munu hinsvegar glaðir borga einhverjum öðrum karli myndarlega upphæð sem færi í vasa stúlkunnar ef hún ætti einhverja möguleika á að útvega sér viðskiptavini sjálf. Feministar, þið eruð fávitar.