Betl

Það er áreiðanlega erfið vinna að vera betlari.  Sitja aðgerðalaus tímunum saman.  Augnaráð vegfarenda lýsa vorkunnsemi og þó oftar fyrirlitningu, þ.e.a.s. augnaráð þeirra sem á annað borð líta í átt til betlarans því flestir forðast að horfa á eymdina.  Og oftast lítið upp úr því að hafa. Halda áfram að lesa

Dýrin útí Afríku 1 – Murchinsons

Langsokkur negrakóngur fór með okkur í tveggja daga fer í Murchinsons Falls þjóðgarðinn. Við gistum í tjöldum sem voru með uppbúnum rúmum og rafmagni og klósett of sturta fyrir utan. Æðislegt veitingahús sem tilheyrir tjaldstæðinu. Við keyptum svona helgarpakka. Því fylgdi frábært morgunverðarhlaðborð, súpa og salat í hádeginu og við fengum að velja um 2 forrétti 3 aðalrétti og 2 eftirrétti á dag. Svo var auðvitað bar og hægt að fá brennivín að hætti héraðsins – sem er ekki ólíkt gini. Mesta ævintýrið var samt auðvitað að fara inn í þjóðgarðinn og sjá dýrin.  Þessar myndir eru frá fyrri hluta fyrri dagsins.

Halda áfram að lesa

Umferð í Úganda

Gatnakerfið í Kampala ber ekki umferðina. Á álagstímum tekur óratíma að komast á milli staða. Í Kampala  virðast engar umferðarreglur gilda og víða eru hvorki umferðarmerki né götuljós. Hér ekki lestakerfi. Það eru leigumótorhjól og skutlur sem halda uppi almenningssamgöngum. Halda áfram að lesa

Pyntingaklefar

Eitt af því sem við skoðuðum í Úganda var dýflissan þar sem Idi Amin lét þá sem hann taldi til fjandmanna sinna rotna í hel í bókstaflegri merkingu.  Forsetahöllin, Mengo-höllin eins og hún er kölluð eftir hæðinni þar sem hún stendur, er frekar nútímaleg bygging. Höllin sjálf er lokuð ferðamönnum en hægt er að skoða dýflissuna sem er þar í bakgarðinum. Halda áfram að lesa

Galdrafólk á Ovino markaðnum

Owino markaðurinn er Kampala útgáfan af Kolaportinu.  Þetta er gríðarstór markaður og gerólíkur túristamörkuðum. Walter fór með okkur þangað. Hann varaði okkur við þjófum og þar sem við vorum bara með símamyndavél sem auðvelt er að hrifsa í mannþrönginni tókum við engar myndir. Myndirnar sem ég birti hér fann ég á netinu.

Mér líður ekki vel í mannþröng og hefði ekki langað að verja mjög löngum tíma á Owino markaðnum en mér fannst gaman að sjá hann. Þremur dögum eftir að við fórum þangað með Walter  brann hluti af markaðnum og talið er víst að eldurinn hafi verið af mannavöldum. Fólk hefur áður borið eld að markaðnum, síðast 2011. Tilgangur brennuvargana virðist vera sá að leggja viðskipti samkeppnisaðila í rúst. Halda áfram að lesa

Vestræn klæði

Svo margt sem vekur athygli okkar þennan fyrsta dag okkar í Kampala. Karlar flytja ótrúlegustu byrðar á reiðhjólum og vélhjólum. Konur bera stórar ávaxtakörfur á höfðinu. Börn leika sér að ónýtum reiðhjóladekkjum í drullunni en hér er lítið um malbik eða steypar gangstéttar og flísar, allsstaðar þessi rauði, fíngerði leir sem verður að leðju í rigningu. Halda áfram að lesa

Koman til Kampala

 Húsgagnaverslun í Kampala

Úganda er land undarlegrar þversagnar. Hér er paradís á jörð. Fullkomið veðurfar; hitastigið á bilinu 20-27 gráður árið um kring. Hér er nóg vatn og frjósamur jarðvegur, góðar koparnámur, olía, m.a.s. heitt vatn. Engu að síður býr þorri Úgandafólks við sára fátækt. Hér rignir reglulega en samt búa um 40% Úgandamanna við ófullnægjandi aðgegni að drykkjarvatni. Viktoruvatn fullt af fiski, ræktarskilyrði frábær og meira en 80% þjóðarinnar eru bændur en samt sem áður þjáist stór hluti þjóðarinnar af næringarskorti. Um 40% barnadauða má rekja beinlínis til vannæringar og 38% barna undir 5 ára aldri eru vannærð. Þetta er Úganda. Landið er auðugt, þjóðin snauð. Halda áfram að lesa

Dagur eitt í Úganda

Úgandaferðin fór langt fram úr væntingum. Langsokkur negrakóngur reyndist hinn mesti höfðingi heim að sækja og auk þess hinn prýðilegasti  leiðsögumaður. Meira að segja Eynar, sem þóttist nú rétt mátulega spenntur þegar við lögðum af stað, talar um að fara þangað aftur. Halda áfram að lesa

Frekar neyðarleg mistök

Undanfarið hef ég verið að flytja efni af gamla léninu mínu hingað og á pistilinn. Það er mikið verk því til þess að tenglar, tjásur og myndir týnist ekki þarf ég að gera þetta handvirkt, þ.e. flytja hverja færslu fyrir sig. Þetta eru skrif 10 ára og lengst af notaði ég bloggið eins og ég nota facebook í dag, þ.e. til að pósta tenglum og koma á framfæri skoðunum í örfáum línum eða varpa fram umræðuefni. Oft komu fram áhugaverðar umræður sem ég vil ekki glata og ég færi þessvegna allt draslið. Halda áfram að lesa

Einhverntíma

Það hefur verið skítkalt í Glasgow síðustu vikurnar og ég legg til að Global Warming verði rekinn. Þetta er bara engin frammistaða. Nújæja, það þýðir víst ekkert að láta það brjóta sig niður svo við erum að fara til Úganda um mánaðamótin. Þar er fullkomið veðurfar árið um kring, svona á bilinu 20-25°C og við verðum hjá vini sem þekkir allar aðstæður. Ég píndi Eynar til að fá sér snjallsíma bara af því að ég vil hafa myndavél sem ég ræð við. Helst vildi ég auðvitað hafa Ingó með en það er nú eins og það er. Halda áfram að lesa

Dekur

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151331996242963

Ferð til Milton Keynes

Eynar þurfti að fara í fjögurra daga vinnuferð til í Milton Keynes sem er í svona hálftíma lestarferð frá London. Ég fór með þótt ég ætti svosem ekki annað erindi en að vera nálægt honum.

Við fengum okkur smá kaffi þegar við lentum í Luton Halda áfram að lesa

Í tilefni af raðstatus á Facebook …

https://www.facebook.com/Batasetur/posts/471684153025345

Þessari runkfærslu var deilt æ ofan í æ 2013 og svo aftur og aftur …

Mitt svar:

  • Sterkasta fólkið er sterkast, ekki viðkvæmast.
  • Það er vel hægt að sýna góðvild án þess að láta traðka á sér.
  • Þeir sem stöðugt annast aðra bera sjálfir ábyrgð á þeirri ákvörðun.
  • Þeir sem eiga erfitt með að segja ég elska þig, fyrirgefðu eða viltu hjálpa mér, geta fengið faglega aðstoð til að vinna á vandamálum sínum, þú þarft ekki að kóa með þeim.
  • Þeir sem virðast hamingjusamir eru það venjulega.
  • Ef fólk lætur þig ekki vita af því að því líði illa er það vegna þess að það kærir sig ekki um slímuga umhyggju þína. Virtu það bara.

Syndin

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151305185367963

Sjónhverfingar 1 – varir

Samningurinn sem ég gerði við djöfulinn hérna um árið virðist vera fallinn úr gildi. Allavega er andlitið á mér farið að lafa. Krem virka ekki rassgat og þau húsráð sem ég hef séð á netinu eru bæði ótrúverðug og til þess fallin að rýra lífsgæði mín meira en eilíf æska myndi gleðja mig. Halda áfram að lesa