Á venjulegu kvöldi vill bera við að Þokki leiti inn í eldhús, á hröðum flótta undan girndaraugnaráði vergjarnra kvenna -og þegar verst lætur hreinni og klárri áreitni. Að lokum var hann orðinn svo leiður á þessu að hann ákvað að mæta í nælonsokkum í von um að lostabríminn rénaði dálítið svo hann fengi vinnufrið. En þá tók ekki skárra við. Nú hefur hann ekki undan að bíta af sér káfsækna karla. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Vínveitan
Vínveitan
Ég velti því oft fyrir mér hvað Vínveitan geri á daginn. Það er svo skrýtið en ég sé hana alltaf fyrir mér í freyðibaði. Svona eins og í alvöru sápuóperu, með rosalega mikilli froðu þannig að viðbeinin sjást og axlirnar. Það gerir hana sexý en samt ekki klámfengna. Halda áfram að lesa