Það mjakast

Ég er ekkert óvön því að tilheyra minnihluta. Ég vil Ísland úr Nató það þykir kannski dálítið hallærislegt en maður er ekki álitnn beinlínis klikkaður út á það. Ég vil að flóttamenn njóti mannréttinda og hef verulegar áhyggjur af uppgangi nýnazisma, það þótti sérviskulegt fyrir 8 árum en í dag er ég sennilega í meirihluta. Halda áfram að lesa

Bóndadagur

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151923283122963

 

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151922769232963

Nígeríusvindl

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151910453162963

Systkinahittingur

Andlát hafa stundum jákvæðar hliðarverkanir. Núna í janúar hittumst við systkinin öll í fyrsta sinn í 20 ár. Það var gaman.

 

Barr

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151890604902963

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151891025752963

Pot

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151871828107963

Jólakveðja

https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10151864349427963&set=a.59864312962.73757.603012962&type=3&theater

Ekkert stress

Á maður ekki að vera svo stressaður á Þorláksmessu? Ég svaf til hádegis er búin að hanga á netinu í dag og er að fá áhugavert fólk í jólakakó í kvöld. Finn bara ekki fyrir neinu stressi. Fer maður þá til Helvítis eða eitthvað svoleiðis?

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/101518635285329

 

Blaðamannaverðlaun Evu

https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151863167442963

 

Afhent heima hjá Heiðu B Heiðars sem jafnframt bauð okkur öllum í mat. Hér eru bornar fram makrónur í eftirrétt.

Enn um sörur

Mér finnst alltaf dálítið súrt að þurfa að éta fullyrðingar mínar ofan í mig en þar sem ég vil ekki hafa það á samviskunni að eyðileggja aðventuna fyrir einhverjum tilkynnist hér með:

Það er rangt, sem ég sagði fyrir ca 10 dögum að Söru Bernhardtskökur séu ofmetnar. Það er Martha Stewart sem er ofmetin. Látið ekki hina satanísku uppskrift þessa útsendara eldhússdjöfulsins villa um fyrir ykkur. Þetta er ekkert mál, ég endurtek, ekkert mál, og ekkert svo tímafrekt heldur.

Fyrirbænir

Ég vil enga hugsanalöggu. En þegar trúað fólk minnist mín í bænum sínum, þá finnst mér það svona eins og ef einhver sem ég sef ekki hjá setur mig í runkminnið. Allt í lagi með það – en ekkert vera að tilkynna mér það.

 

Bakstur

Góðar vinkonur útvega manni afsökun þegar maður bakar ljótar sörur. Steinunn Ólína segir að þetta sé þokunni að kenna en ekki vanhæfni minni. Efast reyndar um að það sé rétt en þetta var nú samt fallega sagt 

Sörur

Söru Bernhardtskökur eru ofmetið sælgæti fundið upp í þeim tilgangi að brjóta húsmæður niður. Henta vel þeim sem vilja eyða degi í að klína út eldhúsið, hendurnar á sér og frystinn, sóa súkkulaði og setja fram kenningar um það hversvegna afraksturinn lítur ekki út eins og á myndinni á vefsíðu Mörtu Stewart. Halda áfram að lesa