Þorsteinn Már Baldvinsson segir, í nýlegri grein, farir Samherja ekki sléttar þegar starfsmenn fyrirtækisins þurftu að fá gjaldeyri vegna ferðar á sjávarútvegssýningu erlendis. Þetta er afleiðing af reglum sem settar hafa verið í tengslum við gjaldeyrishöftin Vegna þessa spyr Þorsteinn „Eigum við að reka alþjóðleg markaðsfyrirtæki á Íslandi?“ Halda áfram að lesa
Samtrygging, einelti, Ögmundur og Sigmundur
Það er ekki geðslegt að sjá Ögmund Jónasson taka til varna fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson hér, og ömurlegt að heyra íslenskt valdafólk tala eina ferðina enn um réttmætar spurningar fjölmiðla sem einelti. Ögmundur gengur reyndar skrefi lengra, og líkir fjölmiðlum við morðingja, sennilega af því honum finnst einelti ekki nógu krassandi lýsing á þeim „ofsóknum“ sem hann og félagar hans verða fyrir. Halda áfram að lesa
Leyndarhyggja sjálfhverfra stjórnmálamanna
Í frumvarpi að nýjum upplýsingalögum, sem haldið er fram að muni auka aðgengi almennings að upplýsingum í fórum hins opinbera, er meðal annars að finna ákvæði um að sumum opinberum upplýsingum megi halda leyndum í 110 ár. Vel má vera að hægt sé, með frjóu ímyndunarafl, að láta sér detta í hug opinberar upplýsingar sem slíkt ætti að gilda um. Hitt er verra, að þetta ákvæði, sem og allur andi laganna, afhjúpar hugsunarhátt sem ætti að vera farinn á öskuhauga sögunnar, ekki síst í ljósi þeirra hörmunga sem hafa dunið yfir stjórnsýslu landsins síðustu árin. Halda áfram að lesa
Vilhjálmur bullar og fjölmiðlar lepja upp
Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra „Samtaka Atvinnulífsins“, líst illa á þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð kvótakerfisins. Það er skiljanlegt, því hann hefur tekið að sér að vera sérstakur talsmaður þeirra sem vilja halda áfram að ausa ofurgróða í eigin vasa úr þeirri fiskveiðiauðlind sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill nú taka til sín aftur, eftir slæma reynslu síðustu ára. Halda áfram að lesa
Gunnar Birgisson ER holdgervingur spillingar og valdhroka
Fyrirsögnin á þessari frétt er röng. Gunnar Birgisson ER holdgervingur spillingar og valdhroka í augum mjög margra. En, það er refsivert að segja það, samkvæmt nýlegum dómi. Halda áfram að lesa