Ég er með höfuðið fullt af dónalegum hugsunum. Ég sé eitthvað dónalegt við hluti sem eru alls ekki dónalegir. Ég veit ekki einusinni hvort ég er með klofið á heilanum eða heilann í klofinu. Um síðustu helgi dreymdi mig m.a.s. dónaskap. Ég hélt að það kæmi bara fyrir stráka en kannski tala stelpur bara ekki mikið um svoleiðis. Ég vona allavega að ég tali ekki mikið upp úr svefni. En stelpurnar eru alltaf sofnaðar löngu á undan mér og ég vakna á undan þeim líka svo það er ekki mikil hætta á að þær fatti það. Freyja talar stundum upp úr svefni en aldrei um neinn dónaskap.
Greinasafn eftir:
Dagbók frá 7. bekk 17
Stundum er allt svo stórt inní manni að maður verður að garga eða lemja eða eitthvað og það er kannski asnalegt en það er samt sannleikur. Í kvöld var ég glöð af því að himininn er svo blár að maður gæti gargað. Og það gerði ég. Við fórum í labbitúr og ég gargaði af gleði og Silla sagði að ég væri vangefin. En það er ég ekki. Það eru hinir sem fatta ekki að stundum á maður að skrækja af því að himininn er blár. Það er út af guðdómnum.
Ég trúi ekki á guð en ég trúi á guðdóminn. Guðdómurinn hefur ekki skoðanir og hann getur ekki ákveðið neitt. Hann er bara í öllu og það er út af honum sem himininn er blár og það hefur ekkert með Jesús að gera. Það er heldur ekki hægt að tala við hann en maður fattar hann samt. En það þýðir ekkert að reyna að útskýra þetta með guðdóminn fyrir fólki af því að kristindómurinn er búinn að eyðileggja allt með því að blanda illgjörnum kalli saman við hann. Ég ætla sko ekki að fermast.
Dagbók frá 7. bekk 16
Það eru næstum allir í 8. bekk komnir með sobba. Þeir sem eru ekki með sobba eru samt með hálsklút svo að allir haldi að þeir séu með sobba. Rósa segist vera hætt með Palla Mikaels. Ég meina það! Við héldum partý í kvöld þegar var búið að slökkva ljósin. Sigga og Silla komu til okkar og við vorum með helling af bugleys og nammi. Sigga spurði Rósu eitthvað um Palla Mikaels, bara til að stríða henni. Hún segir að þau séu hætt saman. Hún er nú bara asni að vera ennþá að ljúga því að hún hafi í alvöru verið með þessum Palla. Við trúðum því næstum því í 6. bekk en þegar Bjarni vinur hans var búinn að eignast bíl 14 ára, þá nennti enginn að hlusta á þetta lengur. Ég skil hana samt alveg. Mig langar líka að einhver sé hrifinn af mér en samt ekki Helgi. En ég hefði samt sleppt þessu með bílinn ef ég hefði búið til svona gervikærasta.
Dagbók frá 7. bekk 15
Ég er búin að fatta hvað kom fyrir mig og Didda Dóra í gær. Við fórum að hugsa með klofinu. Ég veit hvað það heitir en ég er feimin við orðið. Ég er ekki feimin við fólk nema þegar ég hitti það óvænt á Akureyri, þá fer ég alveg í flækju. Ég er ekki feimin við mjög dónaleg orð eins og t.d. …….(1) en stundum er ég samt feimin við sum orð sem eru bara pínulítið dónaleg. Það er mjög skrýtið. Og nú er ég búin að hugsa með klofinu í allan dag og tuskast við alla litlu strákana í bekknum. Það þýðir ekkert að reyna að tuskast við stóru strákana. Ég prófaði einu sinni að tuskast við Árna en hann sneri mig af sér og urraði. En það er gaman að tuskast við litlu strákana af því að þeir eru bara pínulítið sterkari en ég og það er eitthvað svona titrandi við að liggja föst í gólfinu og brjótast um. Ég er samt ekki hrifin af Didda Dóra.
(1. Hér var orð í textanum sem er sennilega ólöglegt að setja á vefsíðu sem börn og unglingar hafa aðgang að. Og þótt ætti að skera úr mér tunguna þá gæti ég ekki með nokkru móti sagt til um hvar ég get hugsanlega hafa lært það.)
Dagbók frá 7. bekk 14
Það kom eitthvað mjög skrýtið fyrir mig í dag. Það byrjaði eiginlega í síðustu viku með því að við Diddi Dóri fórum í vatnsslag og hvorugt okkar þoldi að tapa svo við erum búin að vera í þriggja daga vatnsslag. Og líka að tuskast en stundum verður óvart alvöru slagur úr því. En það byrjar samt alveg í góðu.
En í gærkvöldi vorum við að tuskast í góðu og svo varð ég reið af því að hann sagði asnalegan brandara um rassinn á mér. Ég lét samt sem ekkert væri. Aldrei að gefa höggstað á sér. En svo í enskutíma í dag, þá henti hann pappírsskutlu í mig og þá varð ég brjáluð og henti enskubókinni í hausinn á honum. Ég hitti reyndar ekki en hann kastaði bókinni til baka í mig og hitti og þá varð ég ennþá reiðari og svo fórum við að slást inni í tíma. Villa reyndi að vera brjáluð en hún var ekki mjög sannfærandi. Hún hótaði að henda okkur út en stóð ekki við það þótt við byrjuðum aftur. Svo eftir tíma héldum við áfram og hann elti mig niður á herbergi og við fórum að slást þar. En þá vorum við ekki lengur reið svo það var eiginlega ekki slagur heldur tusk.
Síðan lá hann ofan á mér og þá gerðist eitthvað skrýtið inni í mér. Svona titringur undir húðinni eins og þegar maður hlustar á æðislegt lag mjög hátt stillt og ég fékk hjartslátt. Ég sá alveg að þetta sama kom líka fyrir hann og hann var mjög asnalegur á svipinn og örugglega ég líka. Við hættum alveg að slást. Síðan fór hann bara og ég var svona skrýtin í smástund. Það sem pirrar mig núna er að ég veit ekki hvað svona heitir og mér finnst ég svo mikill plebbi. Hann veit það örugglega og það fer líka í taugarnar á mér.
Dagbók frá 7. bekk 13
Ég er ekki hrifin af Didda Dóra. Eiginlega förum við mikið í taugarnar á hvort öðru og hann segir “mér langar” og svoleiðis vitleysur. En það er samt svo skrýtið að það er eins og hausinn á mér snúist ósjálfrátt í áttina að honum og ég get ekki látið hann í friði og við erum alltaf að tuskast. Ég tuskast líka við Eyvind í mínum bekk en það er ekki eins gaman. Hann á það til að meiða mig. Ég er með fullt af marblettum eftir Didda Dóra en það er samt öðruvísi af því að gerist meira óvart. Mér er sama þótt ég meiðist en ég vil ekki láta meiða mig. Eyvi er svo mikill plebbi að hann fattar ekki muninn. Mig langar að vera hrifin af einhverjum af því að þá er maður alltaf svo titrandi inni í sér en ég er ekki hrifin af neinum núna. Ég er að reyna að æsa mig upp í að verða hrifin af Villa en það gengur ekki neitt. Hann er líka frekar harðhentur og svo kallar hann mig alltaf Jónka Tröll. Það angrar mig samt ekkert.
Dagbók frá 7. bekk 12
Það er ekkert gaman núna. Helgi spurði hvort ég vildi koma í bíó með sér. Ég væri alveg til í það ef það væri bara einhver annar. Mér er strítt á því að hann sé hrifinn af mér og ég var ekkert almennileg við hann í kvöld. Rósa er leiðinleg við mig. Hún er alltaf að tala um hvað ég sé feit og hvað brjóstin á mér hossist mikið. Svo er ég með bólu á hökunni og hún fer ekki hvernig sem ég kreisti hana. Ég vona að hún fari um helgina.