Meira um þjónkun RÚV við LÍÚ

Í framhaldi af þeim viðskiptum mínum við Auglýsingadeild RÚV sem lýst er í síðustu bloggfærslu minni, sendi ég Auglýsingadeild RÚV í gær póst þar sem ég fór fram á að fá lesna í útvarp auglýsingu um framferði LÍÚ og RÚV (sjá tölvupóst hér neðst á síðunni).  Þeirri beiðni var hafnað, og mér var jafnframt tjáð að RÚV hefði ákveðið að hætta að birta auglýsingar LÍÚ, sem dunið hafa á landsmönnum síðustu vikurnar.  Þar sem þessi skilaboð voru frekar óljós, sendi ég áðan eftirfarandi póst til útvarpsstjóra RÚV. Halda áfram að lesa →

Pólitísk ritskoðun á RÚV. Fyrir LÍÚ.

Eins og flestir hafa tekið eftir sem hlusta á Ríkisútvarpið hefur undanfarið birst urmull auglýsinga í nafni „íslenskra útvegsmanna“, þar sem haldið er fram að stjórnvöld séu að „lama fjárfestingar“ í sjávarútvegi, og að tugir þúsunda starfa séu í hættu vegna stefnu ríkisstjórnarinnar, svo fátt eitt sé nefnt. Halda áfram að lesa →

Íkorninn býður Bjarnadýrinu upp í dans

Einu sinn var Íkorni. Hann átti heima í skóginum. Hann dansaði á trjátoppunum og gerði grín að Bjarnadýrinu, sem var svo þunglamalegt og fúllynt og frekt. Svo kom mamma Íkornans og sagði við hann „öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir“. Þá skammaðist Íkorninn sín smá og ákvað að bæta ráð sitt. Hann fór niður úr trjátoppunum og bauð Bjarnadýrinu upp í dans. Og Bjarnadýrið og Íkorninn dönsuðu saman í smá tíma. Svo missteig Bjarnadýrið sig óvart og datt ofan á Íkornann … Halda áfram að lesa →

Við þurfum erlenda fjárfestingu. Not.

Hann er orðinn síbylja, kórinn um að Ísland þurfi mikla erlenda fjárfestingu.  En það gildir sama um hann og ýmsar aðrar staðhæfingar í pólitísku „umræðunni“ á Íslandi:  Það eru aldrei færð fram nein rök, og allt of fáu fjölmiðlafólki dettur í hug að spyrja þá út úr sem slíku halda fram. Halda áfram að lesa →