Að hvítþvo fúskið — opið bréf til forseta

Sæll Guðni

Það voru mikil vonbrigði að sjá rökstuðning þinn fyrir ákvörðuninni um að staðfesta skipun dómaranna í Landsrétt. Ég átti alveg eins von á að einhverjir lögspekingar hefðu bent þér á leið til að réttlæta þetta sem öðrum hefði yfirsést. En það sem þú segir í yfirlýsingu þinni er furðuleg samsuða sem engan veginn tekur á því sem ágreiningurinn snýst um, og það er þér ekki til sóma. Halda áfram að lesa →

Sovésk lög um jafnlaunavottun

Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra lagði nýlega fram frumvarp til laga sem myndi skylda öll fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri til að undirgangast jafnlaunavottun á þriggja ára fresti, en hún á að tryggja að starfsmenn fái sömu laun fyrir sambærileg störf. Frumvarpið gerir þá kröfu til fyrirtækja að þau fái slíka vottun, sem samkvæmt frumvarpinu grundvallast á staðlinum ÍST 85:2012, sem Staðlaráð Íslands gefur út, en Staðlaráðið er „samstarfsráð þeirra sem hagsmuna hafa að gæta af stöðlum“ og „setur sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir“. Halda áfram að lesa →

Það er einfalt mál að leysa húsnæðisvandann

Myndin er samsett af Kvennablaðinu

Nýlega undirritaði Dagur borgarstjóri samning um byggingu 332 íbúða á Gelgjutanga í Reykjavík. Markmiðið er væntanlega að létta svolítið þann gríðarlega þrýsting sem er á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Það er góðra gjalda vert, og kannski algert aukaatriði þótt það sé kaldhæðnislegt, að eigandi fyrirtækisins sem samið var við, og sem væntanlega mun græða þokkalega á þessu, er Ólafur Ólafsson. Hann er einn af þeim sem ábyrgð bera á hruninu, sem er ein af orsökum hins hryllilega ástands í húsnæðismálunum. Halda áfram að lesa →

Kommúnistar taka völdin, gengið fellur

Gengi íslensku krónunnar hefur fallið gríðarlega í dag og í gær, í kjölfar þess að ljóst varð að ný stjórn er að taka við völdum í landinu. Það er alþekkt að markaðir vantreysta kommúnistum og öðru vinstraliði til að fara með efnahagsmál, og birtist það vantraust jafnan með skýrum hætti í gengisþróun. Halda áfram að lesa →

Opið bréf til Steingríms J.

Sæll Steingrímur

Ég var að lesa þennan pistil Björns Vals Gíslasonar: Ríkisstjórn um velferðarmál og jöfnuð

Ég geri ráð fyrir að þú hafir lesið hann líka. Því langar mig að spyrja þig hvort þú ert á sama máli og Björn, og lítir svo á að „hraðar kerfisbreytingar“, svo sem þær hægu breytingar á kvótamálunum sem aðrir flokkar hafa lagt til, séu í andstöðu við velferð og jöfnuð. Halda áfram að lesa →