Opið bréf til innanríkisráðherra

Sæl Ólöf

Sem innanríkisráðherra berð þú ábyrgð á þeim málum sem hér er fjallað um: http://www.frettatiminn.is/utlendingastofnun-sendir-stridshrjad-born-aftur-til-talibana/

Þetta er ekki í fyrsta, ekki í annað, ekki í þriðja skiptið sem íslensk yfirvöld sýna af sér svona viðurstyggilega grimmd. Halda áfram að lesa →

Guðni forseti ræðst á Sjálfstæðisflokkinn

Í viðtali við erlenda fréttastofu í gær sagði Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands, að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki líklegur til að geta myndað stjórn eftir næstu kosningar:

„Sjálfstæðisflokkurinn er andsnúinn öllum kerfisbreytingum. Í ljósi þess að krafan um slíkar breytingar er gríðarlega sterk hjá flestum öðrum flokkum gæti það reynst erfitt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að mynda stjórn,“ sagði Guðni.

Halda áfram að lesa →

Fótbolti, konur, karlremba?

Íslenska þjóðin (í stórum dráttum) ærðist af gleði yfir sigrum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi á dögunum (þótt sumir þessara sigra hafa víst bara verið jafntefli). Gleði er yfirleitt frábær fyrir þann sem fyrir verður, svo enginn ætti að agnúast út í skemmtunina (og reyndar er illskiljanlegt hvað sumir gátu orðið fúlir út í okkur þessi örfáu sem leyfðum okkur að gera grín að látunum, rétt eins og við, fimmtán fýlupúkar, gætum varpað skugga á tryllta gleði hinna þrjúhundruðþúsundanna). Halda áfram að lesa →

Stutt þing, nýja stjórnarskrá

[Eftir að pistillinn birtist var mér bent á að í tillögunni frá SEN hafði orðalaginu „fullt gjald“ (fyrir afnot af auðlindum) verið breytt í „eðlilegt gjald“. Það er veiking sem ég tel að sé til vansa, og að rökin fyrir henni séu mjög veik. Því tel ég eðlilegast að samþykkja einfaldlega tillögu Stjórnlagaráðs óbreytta.] Halda áfram að lesa →