Ástarbréf

Og þegar ég opnaði pósthólfið mitt og sá netfangið þitt innan um ruslpóstinn, þá hlýnaði mér pínulítið að innan. Ekki það að ég hafi ekki átt von á því að þú hefðir samband því það er nákvæmlega það sem þú gerir í hvert einasta sinn sem þú hefur ástæðu til að ætla að ég sé miður mín og einmana. Það hlýtur að styrkja karlmennskuímynd þína að sjá mig í rusli. Halda áfram að lesa →

Oh!

Rassgat og alnæmi!

Ég var að spjalla við svo huggulegan og skemmtilegan mann sem ég rakst á á einni af stefnumótasíðunum á facebook. Hefði alveg viljað hitta hann en álpaðist til að skoða prófílsíðuna hans og komst þá að því að þótt hann sé skráður einhleypur á stefnumótasíðunni, er hann kvæntur samkvæmt aðal prófílnum. Ok, hugsanlega var prófíllinn eldgamall svo ég spurði hann, og jú það stendur heima að hann er víst pínulítið kvæntur ennþá. Halda áfram að lesa →

Pappakassi

-Það er bara eitt sem ég skil ekki Eva mín, hvað sérðu eiginlega við hann?
-Hvað sé ég ekki við hann. Hann hefur grilljón kosti, ég held að ég sé búin að nefna a.m.k 100 þeirra.
-Jamm, hann er svona áreiðanlegur og góður gæi, fair enough, en í alvöru talað Eva, maðurinn er pappakassi. Ég skil hvað einhver húsamús myndi sjá við hann en hvað sérð ÞÚ við hann? ég meina… skilur hann þig? Halda áfram að lesa →

Reclaim the song

Þetta var besta syngipartý sem ég hef nokkurntíma staðið fyrir.

Gestirnir farnir og ég er búin að þvo upp. Herregud hvað ég þarf að skúra hérna á morgun. Áfengisbirgðir fjölskyldunnar uppurnar. Völuvisa sungin. Darri sofnaður í rúminu mínu og egg á pönnunni.

Ég klikkaði á fertugsafmælinu mínu í fyrra. Veit einhver hvers vegna? Er nokkurt svindl að halda frekar upp á 41 árs afmæli?

Á morgun hitti ég mann sem skrifar tónlist. Það finnst mér áhugavert.

 

Brugg

Verkefni dagsins er að brugga skáldamjöð. Ekki veitir af, ég hef ekki skrifað almennilegan texta í margar vikur, hvað þá að ég hafi ort kvæði. Syngipartý annað kvöld. Það eru sjálfsagt fáir sem gera sér almennilega grein fyrir því en aktivismi er t.d. það að syngja í stað þess að líta eingöngu á tónlist sem neysluvöru. Auk þess er ég ekki ennþá búin að jarða síðustu vonbrigði mín og ætli sé ekki kominn tími á Völuvísu.

Árdagspæling viðskiptafrömuðar

Ég er að fara upp á Bifröst í kvöld. Kannski hitti ég Leif Runólfsson. Ég er að vísu búin að gefa hann, því ég er að safna fyrir Önnu og facebook Mammon verðlaunar þá sem gefa. Ég á hinsvegar enn nokkuð í land með að eiga fyrir Önnu (andskotans verðið á þessu kvenfólki) svo ef Leifur Runólfsson reynist vera gæft og snyrtilegt gæludýr, getur vel verið að ég kaupi hann aftur.