Haukur hringdi heim til Ingibjargar Sólrúnar í gær. Hún er stödd á Ítalíu svo það þjónar víst litlum tilgangi að baka upp á hjá henni en hann bað um gsm símanúmer hennar eða persónulegt netfang. Hann fékk hvorugt en var bent á að senda póst á netfang utanríkisráðuneytisins. Halda áfram að lesa
Greinasafn eftir:
Á persónulegum nótum
Vont fólk er ekki endilega raðmorðingjar. Vont fólk er bara fólk sem er að mörgu leyti geðugustu manneskjur en skortir hæfileika til samlíðunar og hefur ekki sérstakan áhuga á því að setja sig í spor annarra. Halda áfram að lesa
Gullkorn úr stóra vegatálmunarmálinu
Lesendum til skemmtunar ætla ég nú loksins að birta nokkur gullkorn úr vitnaleiðslum og málflutningi í stóra vegatálmunarmálinu. Þess ber að geta að ég hef ekki upptökur tiltækar, svo þótt ég setji þetta upp sem samtöl getur vel verið að orðalag sé lítillega breytt og það sama á við um atburðaröðina. Halda áfram að lesa
Auk gullmola margra
Ég verð stöðugt meira hissa á vinnubrögðum lögreglunnar. Þetta er auðvitað bara venjulegt fólk, sem getur gert mistök en lögreglan er ekki bara venjulegt fyrirtæki heldur opinber stofnun sem fer með viðkvæm mál og má ekki gera of mörg alvarleg mistök. Þessvegna hefði ég haldið að vinnureglur sem og siðareglur væru mjög skýrar og þeim vel fylgt eftir. Ég hélt líka að hjá stofnun eins og lögreglunni væri algerlega á hreinu hver á að gera hvað. Halda áfram að lesa
Framhald á fimmtudag
Aðalmeðferð í stóra vegatálmunarmálinu heldur áfram í Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag. Sýslmundur á eftir að leiða fram eitt vitni, algert lykilvitni að sjálfsögðu. Halda áfram að lesa
Þingmenn eru líka fólk
Í Kastljóssþætti gærdagsins tók Jónína Bjartmartz Helga Seljan í nefið fyri óvandaðan fréttaflutning sem virðist ekki eiga við nein rök að styðjast. Helgi reyndi að klóra í bakkann með því að fá hana til að „viðurkenna“ að hún hefði leiðbeint tengdadóttur sinni. Óttalega var það nú vesæl nauðvörn.
Hvað með það þótt Jónína hafi gefið góð ráð? Er það bannað? Er það ósiðlegt? Mér þætti það hverri tengdamóður til vansa að neita að leiðbeina flóttamanni um refilstigu kerfisins og reyndar tel ég það siðferðilega skyldu hvers mannréttindasinna sem hefur til þess tök og þekkingu.
Ég trúi því ekki að nokkur góðgjörn manneskja leggi það að jöfnu við siðspillingu að sýna venslafólki samstöðu. Alþingismenn eiga alveg sama rétt á því og annað fólk að styðja sína nánustu svo framarlega sem þeir misnota ekki aðstöðu sína. Það væri að tala um þetta sem spillingarmál ef Jónína sæti ennþá í allsherjarnefnd en svo er ekki. Það væri líka hægt að flokka þetta sem spillingu ef nefndin hefði veitt stúlkunni ríkisborgararétt af einskærri greiðasemi við Jónínu og þá væru það meðlimir nefndarinnar sem væru sekir um spillingu.
Helgi Seljan kom illa út úr þessu viðtali. Hann átti það skilið.
Hver kemur memm til Þórunnar?
400.000 tonn af koltvísýringsútblæstri árlega frá einni olíuhreinsunarstöð. Þetta er náttúrulega bilun. Getur lofttegund í alvöru verið svo þung að þessi tala standist?
Rekinn!
Haukur er mikil félagsvera og þótt hann hafi strax tekið þá afstöðu að líta á dóminn sem launað frí til menntunar og ritstarfa í þágu Saving Iceland, og þótt hann hafi notið þeirra forréttinda að fá að valsa eftirlitslaust um borgina var hann samt feginn þegar honum var sagt að hann yrði fluttur á Skólavörðustíginn þann 13. ágúst. Halda áfram að lesa
Inn vil ek!
Þegar Byltingin mætti til afplánunar inn í Hverfisstein, stundvíslega kl. 13 þann 6. ágúst, munaði litlu að hann þyrfti að brjóta sér leið inn. Engin kannaðist við að eiga von á honum og hann var m.a.s. beðinn að leggja fram boðun í afplánun til sönnunnar. Það vildi svo vel til að hann var með boðunina með sér, svo hann losnaði til að fremja glæp á staðnum til að fá inngöngu. Halda áfram að lesa
Forgangsmálin
Sonur minn Byltingin var dæmdur til 18 daga fangavistar fyrir að trufla stóriðjufyrirtæki við þá iðju sína að eyðileggja jörðina. Þetta er algengur dómur fyrir ölvunarakstur enda mun dómskerfinu þykja það álíka alvarlegur glæpur að stofna lífi og limum vegfarenda í hættu og að minna stjórnvöld og stórfyrirtæki á að til er fólk sem ætlar ekki að horfa aðgerðarlaust upp á náttúruspjöll og mannréttindabrot í þágu áliðnaðarins.