Sameignarryksugan er biluð og stigagangurinn orðinn -úff. Sjálf á ég enga ryksugu, bara drullusokk og hann gerir jöskuðum gólfmottum ekkert gagn. Þótt ryksuguskortsdrama mitt sé einmitt öfugt við ryksugudrama Langa Sleða finn ég til djúprar samkenndar með honum þessa dagana. Ég held nefnilega að ryksogsleysi lífs míns sé í raun táknrænt jin sem fellur nákvæmlega að hinu ryksogna jangi í lífi Sleðans. Ég er búin að biðja hann að giftast mér en hann vill það ekki. Ég skildi rökin ekki alveg en þau tengjast held ég Íslendingabók. Halda áfram að lesa
Í fréttum er þetta helst
Í fréttum er þetta helst:
Tölvan mín er veik. Með einhvern ógeðsvírus og þar sem tölvulæknirinn minn hefur, sökum félagslegara aðstæðna, takmarkað leyfi til fjarveru frá heimili sínu hef ég setið uppi með sjúklinginn alls ónothæfan síðan á mánudagskvöld.
Síðustu helgi smíðaði ég 40 vatnsnema og setti í eina þvottavél. Afleiðingarnar eru ástand. Næstu helgi verð ég á Nesjavöllum. Spurning hvort ég eigi ekki bara að panta Heiðar og co strax? Halda áfram að lesa
Búrið
Elskan mín og Ljúflingur
Allt sem þú vilt geturðu fengið, spurningin er bara þessi eilífa; hvað má það kosta? Líklega verður þetta lögmál rauði þráðurinn í ævisögu minni þegar upp er staðið.
Það er fyrst núna sem hugmyndin um að eitthvað kunni að breytast, (aðstæðurnar eða viðhorf hans eða að ég sjálf sjái skyndilega hlutina í allt öðru ljósi) vekur mér engar væntingar. Ég er komin yfir sorgina og tilbúin til að halda áfram. Kannski veit maður aldrei almennilega hversu háu verði maður er reiðubúinn að greiða hamingju sína en ég veit allavega hvað ég vil ekki. Halda áfram að lesa
Teljarinn sýnir
Teljarinn á síðunni minni gefur ýmsar bráðskemmtilegar upplýsingar. T.d. hefur einhver fundið hana með því að biðja um eitthvað „offensive“. Hann (eða hún) hefur skoðað fullt af eldgömlum færslum en einhvernveginn segir mér svo hugur um að vonir hafi staðið til að finna eitthvað svolítið meira krassandi. Halda áfram að lesa
Grænblár
Ég hef ekki fengist við ljóðaþýðingar fyrr og var eiginlega að hugsa um að gefa verkið frá mér. Það er svo gott á ensku. Merkingin svo margræð og ég var alveg viss um að mér yfirsæist eitthvað. Búin að skoða margar túlkanir á netinu en vissi að eitthvað vantaði. Stundum er engu líkara en lausnin komi að ofan þótt ég efist um að guðdómurinn standi fyrir því sem kom fyrir mig í þetta sinn. Halda áfram að lesa
Deit
Ég veit eiginlega ekki af hverju ég var svona stressuð en ég var komin með munnþurrk um 5 leytið og farin að skjálfa í hnjánum kl 6. Ekki var það djúpstæður höfnunarkvíði eða óviðráðnleg eftirvænting. Frekar eins og frammistöðukvíði. Þetta stress var einkum flippað fyrir það að ég hafði reiknað með því að hann vildi ekkert við mig tala en svo þegar ég fékk það sem ég vildi -og allt á tárhreinu, fannst mér einhvernveginn eins og ég væri til sýnis fyrir hann en ekki hann fyrir mig. Halda áfram að lesa
DV er ógeð
Plúsinn svona ansi snjall í dag. Býður landanum tveggja mánaða áskrift að þeim ómerkilega snepli DV með svarmöguleikunum Já takk ég þori og vil gerast áskrifandi að DV í 2 mánuði og fá 2 miða á Sailesh og Nei takk, ég þori ekki.
Ég sé ekki í fljótu bragði að það þurfi sérstakt hugrekki til að láta fóðra sig á ærumeiðandi kjaftasögum. Ef það er fáránleiki fyrirsagnanna sem heillar er nærtækara að kíkja á Baggalút. Það kostar ekkert og þar sem sú netsíða er kynnt undir merkjum fáránleika, ættu fréttir og fyrirsagnir sem þar birtast ekki að skaða neinn alvarlega. Sá vondi blöðungur DV þykist hinsvegar færa okkur alvöru fréttir sem er öllu alvarlegra.
Þar sem Plúsinn býður ekki upp á svarmöguleikann Nei, ég borga ekki fyrir pappír undir kattasandinn eða Nei, ég styð ekki blað sem hefur sorpfréttamennsku að yfirlýstu markmiði svaraði ég þessari auglýsingu ekki.
