Jafnréttismál í Háskóla Íslands

Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands sendi mér eftirfarandi erindi þann 24. mars, vegna málfundar sem félag prófessora stendur fyrir í dag, til kynningar á frambjóðendum til rektorskjörs í Háskóla Íslands.

Þar sem efni fundarins var þá löngu ákveðið og ég búinn að undirbúa mig í samræmi við það, gat ekki komið því við að fjalla um þessi mál á þeim stutta tíma sem frambjóðendum er ætlaður, en ákvað svara þess í stað hér. Halda áfram að lesa

Rannsóknir og forréttindafemínismi

Ef fimm konur og fimmtán karlar í hundrað manna úrtaki reyndust hafa tiltekinn sjúkdóm dytti manni ef til vill í hug að sjúkdómurinn legðist fremur á karla en konur.  Fengi maður að vita að í úrtakinu væru 25 konur og 75 karlar lægi hins vegar beinna við að álykta að sjúkdómurinn væri jafn algengur meðal beggja kynja.  Væri um að ræða 10 konur og 90 karla væri nærtækara að álykta að konur væru þrefalt líklegri til að fá sjúkdóminn.  Sigríður Halldórsdóttir, prófessor á heilbrigðisvísindasviði við Háskólann á Akureyri, virðist hafa frumlegri afstöðu til tölfræði. Halda áfram að lesa