Íslensk stjórnvöld sem kenna sig við félagshyggju og mannúð, hafa nú kveðið upp dauðadóm yfir 6 flóttamönnum til viðbótar. Þeirra á meðal er vinur minn glæpamaðurinn Elyas Sultani en glæpur hans er sá að hafa fengið talíbana upp á móti sér og glæpamaðurinn Hassan Raza sem er sekur um að hafa barnað unnustu sína og kvænst henni í óþökk fjölskyldu hennar, sem sá strax um að lífláta hina óguðlegu gálu.
Hassan Raza er 23ja ára. Hann hefur verið á flótta frá 17 ára aldri. Hann flúði frá Grikklandi þegar menn á vegum fjölskyldu sóðapíkunnar (sem fjölskyldan drap, samkvæmt hefðum og réttlæti í heimalandi hans) réðust á hann, brutu í honum 4 rifbein og veittu ýmsa aðra áverka. Hassan Raza á ekki að vera í flóttamannabúðum. Hann á að vera í námi eða á vinnumarkaðnum eins og aðrir ungir menn. Hann á ekki að þurfa að fara aftur í aðstæður þar sem hann hefur góða ástæðu til að óttast um líf sitt, heldur á hann að njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að lifa við öryggi.
Það sama á við um hina glæpamennina sem Íslendingar ætla nú að senda út í opinn dauðann. Menn sem hafa framið þá glæpi að rísa á einhvern hátt gegn valdi, hvort sem er opinbert vald eða hefðir; valdi sem þeir kusu ekki yfir sig og bera enga ábyrgð á.
Af öllum þeim pólitíska subbuskap sem hefur viðgengist síðan eini flokkurinn sem hefur sýnt mannúðarmálum áhuga komst til valda, er þessi ákvörðun svívirðilegust.