Stál

Hefur gengið á með éljum. Skrattinn hamast á dyrabjöllunni og Amma hans sendir sms. Skrattinn svarar ekki símanum og Amma hans svarar ekki dyrabjöllunni. Lítið um sprungnar skeljar í þeirri fjölskyldu.

Um miðnætti tróð ég Skrattanum í sauðarlegginn og stáltappa í opið. En ég átti bara einn legg svo Amman lék lausum hala í alla nótt og hélt fyrir mér vöku. Um það leyti sem hún fékkst til að leggja sig var Skrattinn vaknaður. Ég gerði tilraun til að bjóða honum morgunmat ef hann lofaði að vera stilltur en hann trompaðist bara og hótaði að aka stórri ýtu á stáltappann ef ég opnaði ekki fyrir honum.

Svei mér þá ef lítur ekki út fyrir stórhríð.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Stál

  1. ————————————–

    Það er nú nógu slæmt þegar skrattinn hittir ömmu sína, en þegar þau leggja saman í árásir á mann þá er erfitt að verjast.
    Þakka þér fyrir kveðjurnar á síðuna mína.

    Posted by: Ragna | 15.03.2007 | 8:57:11

Lokað er á athugasemdir.