Eitt afsak…

Húsasmiðurinn hringdi. MIður sín út af þessu með Gyðjuna. Ég gaf honum á sínum tíma eitthvað af munum sem ég ætlaði að losa mig við og hann hafði ruglað einhverj saman og talið að styttan tilheyrði. Ég sé enga ástæðu til að draga þessa skýringu í efa því ef tillit er tekið til þess ógnarmagns af dóti og drasli sem blessaður maðurinn hefur safnað í kringum sig, þá vær beinlínis óeðlilegt ef hann henti reiður á hverjum einasta hlut. Fær því hér með fulla fyrirgefningu.

Mig langar samt ekkert að hafa þessa styttu heima hjá mér lengur.

 

One thought on “Eitt afsak…

  1. ———————————————

    Hjúkk að það var skýring á þessu. Þá get ég hætt að pirra mig, það er nefnilega svo tímafrekt.
    Hafðu þessa styttu hjá þér. Hún boðar gott. Í alvöru!!!

    Posted by: Hullan | 26.02.2007 | 12:33:21

    ———————————————

    Jamm, gyðjan boðar áreiðanlega gott. Hún var t.d. á heimilinu bæði þegar Húsasmiðurinn flutti inn til mín og líka þegar ég flutti út frá honum. Hvort skyldi nú hafa verið gæfuríkara skref?

    Posted by: Eva | 26.02.2007 | 13:32:24

    ———————————————

    Ég veit, ég veit. Bæði.
    Það var gott að hann flutti inn til þín, því þið voruð ánægð saman, og svo fór allt í kúk og klessu og þá fluttiru út. Mjög gott, því annars hefðiru ekki haft það gott.
    Trúiru mér núna??
    Elska þig. :o)

    Posted by: Hullan | 26.02.2007 | 15:33:56

Lokað er á athugasemdir.