Ofbeldi eykst og eykst og eykst. Sérstaklega kynferðisofbeldi. Menn greinir reyndar á um hvort það sé mótorhjólaklúbbum, klámvæðingunni eða muslimum að kenna en aukningin er staðreynd, heimur versnandi fer og æskunni hnignar. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Innflytjendamýtur
Á flótta undan réttvísinni
Fyrir nokkrum vikum byrjaði ég á pistlaröð um mýtur tengdar innflytjendum og flóttamönnum. Held nú áfram þar sem frá var horfið. Að gefnu tilefni fer ég fram á að umræður tengist beinlínis efni greinarinnar. Halda áfram að lesa
Innflytjendamýta 3 – glæpahneigð innflytjenda
Eitthvað ætlar að standa á kynþáttahöturum að þiggja boð mitt um að nota tjásukerfið til að gera grein fyrir skoðunum sínum. Það virðist vera eitthvað flókið þegar krafan er sú að þeir færi rök fyrir máli sínu. Jæja, það er þá kannski hægt að halda áfram að ræða innflytjendamýturnar án þess að hnjóta endalaust um þessa þjóðarmorðsþvælu.
Sú mýta sem sennilega er líklegust til að ýta undir kynþáttaofsóknir er þessi: Halda áfram að lesa
Inngangur að innflytjendamýtum
Síðustu daga hafa nokkrar mannvitsbrekkur sem kalla sig þjóðernissinna, tjáð sig um málefni strokuþrælsins frá Máritaníu á umræðukerfi DV. Þótt ég aðhyllist frjálslega flóttamannastefnu, skil ég vel áhyggjur þeirra sem sjá fyrir sér hörð kynþáttaátök og hafa áhyggjur af því að mikill fjöldi innflytjenda ali af sér efnahagsvanda og ýmis félagsleg vandamál. Ég hef hinsvegar takmarkað umburðarlyndi gagnvart skoðunum þeirra sem álíta að lausnin á þessum vanda sé fólgin í aðskilnaðarstefnu og telja hvítt fólk og kristið á einhvern hátt öðru fólki æðra og rétthærra. Halda áfram að lesa
Dæmi um innflytjendamýtur
Innflytjendavandamál skapast þegar ólíkri menningu er blandað saman
Þetta fólk kemur hingað til að taka vinnu frá okkur
Þau koma hingað til að leggjast á velferðarkerfið