Forsetaframbjóðandinn Davíð Oddsson bauð sig fram gegn Ólafi Ragnari Grímssyni af því að hann vildi ekki að Ólafur sæti lengur. Þetta sagði Davíð sjálfur í viðtali í þættinum „Í bítið“ á Bylgjunni í morgun. Halda áfram að lesa
Afnemum skólaskyldu
Stærðfærðitími eftir Leonóru Dan
Þegar ég segist vilja afnema skólaskyldu rekur fólk upp stór augu. Eða þá að það rúllar augunum. Hugmyndin þykir fráleit. Menn sjá fyrir sér hroðalegt óreiðusamfélag þar sem stór hluti þýðisins er ólæs og gerir helst ekkert annað en að spila tölvuleiki og reykja hass. Halda áfram að lesa
„Umfang mála réttlætir ekki mannréttindabrot“ – viðtal við Hafþór Sævarsson
Í júlí síðastliðnum skilaði settur ríkissaksóknari, Davíð Þór Björgvinsson, áliti sínu á beiðni um endurupptöku Guðmundar og Geirfinnsmála. Niðurstaða hans var sú að rök séu fyrir endurupptöku í málum Sævars Ciesielski, Tryggva Rúnars Leifssonar, Alberts Klahn Skaftasonar og Guðjóns Skarphéðinssonar. Halda áfram að lesa
Pírataskjaldborgin, fjármálaráðherra og sjötta boðorðið
Mikið gæfuspor yrði það ef kjósendur sýndu jafn mikinn áhuga á störfum fjármálaráðherra og meintum bólfararáformum hans. En með fullri virðingu fyrir einkalífi Bjarna Ben og grunnstefnu pírata, þá er þessi pistill afar langt frá því að vera það skynsamlegasta sem sagt hefur verið um stóra Madison-málið. Halda áfram að lesa
Af hverju ættu kennarar að fá að græða á nemendum?
Í síðasta pistli stakk ég upp á því að háskólakennarar veittu nemendum sínum, og öðrum eigendum Háskóla Íslands, rafrænan aðgang að því námsefni sem þeir útbúa, endurgjaldslaust. Ég hefði reyndar átt að taka fram að ég átti eingöngu við akademíska starfsmenn við ríkisháskóla, það eru auðvitað fleiri sem skrifa námsbækur. Halda áfram að lesa
Háskólanemar hættir að kaupa námsbækur
Um helgina varð ég vitni að umræðu þar sem háskólakennari viðraði áhyggjur sínar af því að nemendur við íslenska háskóla lesi ekki þær bækur sem skráðar eru á kennsluáætlun. Halda áfram að lesa
Páll Winkel skilur bara ekkert í þessu
Það er mjög óskynsamlegt að flýja úr fangelsi og sérlega óskynsamlegt fyrir þá sem búa í 300.000 manna eyríki. Eins og Páll Winkel bendir á, þá bíður einangrunarvist og minni von um reynslulausn, þeirra sem strjúka. Auk þess eru þeir sviptir möguleikanum á dagsleyfi í tvö ár og geta átt á hættu að vera beittir ýmsum öðrum refsingum (sem formlega eru kölluð „agaviðurlög“) svo sem takmörkun heimsókna og símtala. Halda áfram að lesa
Samræmd viðhorfapróf?
Það er ekki ný hugmynd að stofnanir ríkisins eigi að móta áherslur í siðferðilegu uppeldi barna. Kirkjan hafði til skamms tíma svo til óheftan aðgang að skólabörnum og grunnskólum var bókstaflega ætlað að ala börn upp í guðsótta og góðum siðum.
Hversu mikinn árangur það bar vitum við lítið um. Önnur viðhorf en hin kristilegu voru ekkert uppi á borðinu og flest börn hefðu líklega tileinkað sér kristindóminn þótt skólinn hefði aldrei nefnt hann einu orði. Við vitum aftur á móti að margt fólk sem ólst upp í þessu andrúmslofti, og fékk fínar einkunnir á kristnifræðiprófum, gekk af trúnni. Við vitum að margt fólk sem nú er á miðjum aldri og ólst upp við bænahald í skólum neitaði að fermast eða skráði sig úr Þjóðkirkjunni síðar. Í sumum tilvikum hefur þetta fólk barist ötullega gegn trúarlegri innrætingu í skólum, með þeim árangri að það þykir ekki lengur við hæfi að skólar skipti sér af trúaruppeldi barna. Halda áfram að lesa
Alveg jafn skítsama um góð ráð og Eygló sjálfri
Miðsvæðis í Reykjavík má reikna með að leiguverð fyrir herbergi með aðgangi að eldhúsi, baði og þvottahúsi sé á bilinu 55-70 þúsund. Tveggja herbergja íbúðir kosta oft á bilinu 160-190 þúsund á mánuði. Algengt er að að fólk, hvort heldur er á leigumarkaðnum eða þeir sem búa í „eigin húsnæði“ (sem venjulega er að mestu leyti í eigu lánastofnana) fari með meira en 60% tekna sinna í húsnæðiskostnað. Halda áfram að lesa
Á löggan bara að fá það sem hún vill?
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna útskýrir kröfu lögreglunnar um að fá að bera rafbyssur í Kasljósinu þann 22. júní. Halda áfram að lesa