Ég tilheyri diskókynslóðinni skilst mér. Samt finnst mér ég tilheyra hippatímanum, bæði hvað varðar viðhorf og tónlistarsmekk. Mér fannst diskóið ekkert leiðinlegt en ég var heldur ekkert sérstaklega hrifin af þeirri tónlist. Ég var tæpra 9 ára þegar ég uppgötvaði Megas, heyrði í honum í útvarpinu og fékk hann gjörsamlega á sálina. Mamma gaf mér Fram og aftur blindgötuna stuttu síðar og vinkonum mínum, sem kunnu Abba textana utan að (án þess að skilja neitt í ensku nema baby og I love you) og sungu hástöfum í hárbursta með tilheyrandi danshreyfingum, fannst ég í besta falli sérvitur og þó miklu fremur hreinræktaður fáviti. Halda áfram að lesa
Þú mátt fá’ana því ég vil ekki sjá’ana
Einhverntíma í síðustu viku heyrði ég (í fréttum RÚV) sagt frá könnun sem sýndi að mjög hátt hlutfall bandarískra telpna á grunnskólaaldri (mig minnir allt að 40% 10 ára stúlkna) töldu sig vera of feitar. Þetta hljómar skelfilega. Erum við virkilega búin að innræta börnum staðlaðar ímyndir um það hvernig fólk eigi að líta út, svo freklega að þau þjáist af óþarfa útlitskomplexum strax í grunnskóla? Á fréttinni var allavega ekkert annað að skilja. Halda áfram að lesa
Bjarnargreiði
Fyrir um 13 árum eignaðist ég vinkonu sem mér þykir ennþá vænt um þótt við höfum sáralítið samband haft síðustu árin. Á þeim tíma vorum við hinsvegar heilmikið saman. Hún var nógu lítil til að ég gæti notað fötin hennar en of stór til að hún gæti notað fötin mín. Halda áfram að lesa
Orðasvipan afneitun
Ég hef dálítið velt því fyrir mér undanfarið hvernig við notum orð sem svipur á hvert annað þegar skynsamleg rök þrýtur. Sum orð virðast áhrifameiri en önnur og til þess fallin að þagga niður í viðmælandanum. Ég ætla að skrifa nokkrar færslur um þau orð sem hafa verið notuð sem svipur á mig (virkar að vísu ekki, mér finnst gott að láta lemja mig) og sem ég hef staðið sjálfa mig að að nota á aðra.
Afneitun er alveg rosalega vinsæl orðasvipa. Fyrir nokkrum árum heyrði ég þetta orð aðallega notað um alkóhólista sem vildu ekki horfast í augu við vandann og afturbataalkar notuðu þetta einnig um fólk sem þá langaði til að væru í sömu þörf fyrir meðferð og þeir sjálfir.
Ég veit ekki hvort notkun orðsins hefur aukist en síðustu árin hefur það gerst oftar og oftar að þetta orð, afneitun, hefur verið notað í þeim tilgangi að reyna að stinga upp í mig eða gera lítið úr mér og ég hef séð þetta notað þannig gegn öðru fólki líka. Nokkur dæmi: Halda áfram að lesa
Belgíska Kongó
Við Pysjan fórum að sjá Belgíska Kongó í kvöld. Drottinn minn dýri hvað ég skemmti mér vel. Átti von á góðu en þetta var alveg óborganlegt. Ætlaði reyndar að eyða laugardagskvöldinu með stráknum en Sigrún bað mig að vinna með sér á laugardagskvöldið svo ég samdi við hann um að við færum frekar í leikhús í kvöld og að þeir Snorri gætu þá verið saman á laugardagskvöldið. Hann var hæstánægður með það og ég verð að segja að ég er fegin því annars hefði ég líklega misst af þessu frábæra stykki. Bara ein sýning eftir og ég hvet alla til að fara á lokasýninguna.
Heldurðu að ég viti ekki hvað ég er að gera?
Pysjan er kominn með leyfi til æfingaaksturs. Finn hvernig ég breytist í teiknimyndafígúru um leið og hann rykkir af stað. Finnst eins og hárið á mér sé vírbursti, augun glennast ósjálfrátt upp og ég yrði ekki hissa þótt kæmi í ljós að þau séu fest í tóttirnar með gormum, munnurinn hrepist saman og ég hreinlega ræð ekki við röddina, æpi upp þvert gegn ásetningi mínum þegar hann, svellkaldur, lætur sig vaða inn í hringtorg þvert fyrir ljósgráan Pajero, hreinan og með virðuleg jakkaföt við stýrið. Ég hef ekki orðið svona hrædd síðan ég sat í bíl með Borghildi systur minni síðast. Halda áfram að lesa
Sjálfum sér til verndar
-Til hvers að sofa hjá einhverjum án þess að meina neitt með því þegar er svona miklu skemmtilegra að hafa tilfinningar með í spilinu? spurði hún og þar sem mér er málið skylt hlýt ég að svara.
-Vegna þess ljúfan mín dúfan að þegar upp er staðið fer það ekki eins hryllilega illa með þig. Halda áfram að lesa