Fyrir hundrað árum var sjálfsfróun af mörgum talin afar skaðleg, bæði líkamlegri heilsu og andlegri, sem og siðferði samfélagsins. Þeir sem slíkt stunduðu voru harðlega fordæmdir, ekki síst ungt fólk, sem hafði ekki þá reynslu lífsins sem gerir fólki auðveldara að láta slíkt sem vind um eyru þjóta, eða láta það að minnsta kosti ekki valda sér þeirri vanlíðan sem trúlegt er að þetta hafi valdið fjölda ungmenna. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Klámdjöfullinn
Klámstjarnan Gail, Guðbjartur og Skúli
Það er unnið að því hörðum höndum þessa dagana að auka til muna stríðsreksturinn í „stríðinu við klámið“. Helstu fréttir síðustu daga hafa verið af klámráðstefnu sem haldin var af velferðar- , innanríkis- og menntamálaráðuneytinu. Aðalstjarnan á ráðstefnunni var Gail Dines, sem kynnt er sem fræðimaður (sem virðast miklar ýkur, ef ekki hreinn þvættingur, sjá hér að neðan), en sem hikar ekki við að ausa úr sér staðhæfingum um klám og skaðsemi þess, án þess að benda á áreiðanleg gögn máli sínu til stuðnings. Halda áfram að lesa
Svör um klám og mannréttindi í Rvík
Fyrir þrem vikum sendi ég Mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar nokkrar fyrirspurnir vegna klámvæðingarbæklings borgarinnar, sem fjallað var um hér og hér. Svör bárust í fyrradag, og eru þau birt hér í lokin. Reyndar er sumum spurningunum ekki svarað, og hef ég ítrekað þær, og mun birta svörin hér ef þau verða athygliverð. Halda áfram að lesa
Klám og skrattamálun í Reykjavík
Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar gaf nýlega út bæklinginn „Klámvæðing er kynferðisleg áreitni“. Ég fjallaði um hann í þessum pistli, en þá vissi ég ekki að borgin bjó yfir upplýsingum um algengi kynferðislegrar áreitni á vinnustöðum hennar. Þær upplýsingar fékk ég eftir að hafa spurt, en fyrst fékk ég þó þetta svar frá starfsmanni skrifstofunnar: „Eftir að bæklingurinn kom út hafa fjölmargar konur starfandi hjá Reykjavíkurborg rætt atvik sem þær hafa orðið fyrir og tengjast klámvæddri orðræðu. Vonandi svarar það spurningu þinni um algengi.“ Halda áfram að lesa
Reykjavíkurborg með klám á heilanum?
Nýlega gaf Reykjavíkurborg út bækling með titlinum „Klámvæðing er kynferðisleg áreitni“. (Reyndar stóð „ofbeldi“ í stað „áreitni“ á tenglinum þegar bæklingurinn var fyrst settur á netið, og þannig er tengillinn enn í dag neðst á þessari síðu.) Sú „rannsókn“ sem bæklingurinn grundvallast á leiðir alls ekki ljós að klám og kynferðisleg áreitni séu algeng á vinnustöðum borgarinnar, en höfundurinn veifar þrátt fyrir það ákaft stimpli klámvæðingar- og kynferðisáreitni, þótt einu „gögn“ hans séu viðtöl við fimm handvalda starfsmenn. Halda áfram að lesa