Vinir fasismans á Íslandi

Ég er ekki andkapítalisti, í þeim skilningi að ég er fylgjandi sem mestu frelsi fyrir einkaframtak og óheft viðskipti, að því tilskildu að komið sé í veg fyrir óeðlileg forréttindi og fákeppni. Ég er líka fylgjandi sem mestri alþjóðavæðingu, í þeim skilningi að ég vil sem minnst höft á samskiptum fólks og fyrirtækja yfir landamæri. En, ofar öllu þessu stendur krafan um mannréttindi öllum til handa, alltaf og alls staðar. Halda áfram að lesa →

Brottrekstrarsök Ríkislögreglustjóra

Vera má að ég hafi misskilið eitthvað í íslensku réttarfari og stjórnsýslu, og vona að einhver leíðrétti mig þá, en svona sýnist mér þetta líta út:

Ríkisstofnunum ber að afhenda Ríkisendurskoðun gögn sem síðarnefnda stofnunin biður um til að geta sinnt hlutverki sínu.  Þetta stendur nefnilega í lögum um Ríkisendurskoðun: Halda áfram að lesa →

Hrædd stjórnvöld eru hættuleg

Ákveðið hefur verið að flýta setningu Alþingis á laugardaginn, svo hún hefjist klukkan tíu en ekki hálftvö eins og venja hefur verið. Fáir trúa því væntanlega sem skrifstofustjóri Alþingis segir um þetta, nefnilega að þingmönnum sé svo í mun að geta byrjað helgina snemma. Halda áfram að lesa →