Fyrirlestur um hrunið, á ensku

Oft hefur verið um það talað að rétt væri að þýða skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið á ensku, til að gera útlendingum kleift að kynna sér þá ítarlegu úttekt sem þar var gerð á orsökum og atburðarás.  Stjórnvöld hafa engan áhuga sýnt á því, og þess vegna hefur ekki verið hægt að benda útlendingum á neitt bitastætt um hrunið.

Halda áfram að lesa →

Pólitískur drullusokkur

Í sjónvarpsfréttum RÚV  í gærkvöldi var talað við einn af ráðherrum landsins.  Þetta var frábært viðtal, sem er allt of sjaldgæft á RÚV, því ráðherrann fékk allar þær augljósu spurningar sem hann átti að fá.  Sýnd var klippa úr Silfri Egils þar sem ráðherrann lýsti vandlega afstöðu sinni til ESB-málsins, sem var sú að þjóðin fengi að segja sinn hug í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort aðildarviðræðum skyldi haldið áfram eða ekki.  Framhaldið af því átti, samkvæmt ráðherranum, að vera þetta:

Halda áfram að lesa →

Til varnar Vítisengli

Fyrir tæpum 40 árum voru nokkur ungmenni hneppt í gæsluvarðhald, og beitt harðræði sem nánast allir eru í dag sammála um að hafi verið viðurstyggilegt.   Þetta fólk sat í gæsluvarðhaldi árum saman, sumt í algerri einangrun, og var bókstaflega pyntað, bæði andlega og líkamlega.  Þetta gerðist á Íslandi og þótt nú séu langflestir sammála um að þetta hafi verið svívirðileg meðferð gilti allt öðru máli þá.

Halda áfram að lesa →

Hvar eru allir lögfræðingarnir?

Síðan ríkissaksóknari lagði fyrir lögreglustjórann í Reykjavík að gera lögreglurannsókn á lekamáli innanríkisráðuneytisins  (þ.e.a.s. sakamálarannsókn, öfugt við það sem ýmsir ráðherrar hafa haldið fram) hef ég velt því fyrir mér af hverju í ósköpunum nánast engir lögfræðingar tjái sig um þetta mál á opinberum vettvangi. Halda áfram að lesa →

Stefán Eiríksson rannsakar yfirmann sinn

Nýlega fékk lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, til rannsóknar frá ríkissaksóknara lekamál innanríkisráðuneytisins.  Í því máli hafa starfsmenn ráðuneytisins, þ.á.m. ráðherra, verið kærðir vegna gruns um hegningarlagabrot.

Halda áfram að lesa →