Flestir foreldrar halda alls konar hræðsluáróðri að börnum sínum og það á ekkert bara við um forvarnir gegn dópi. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Þetta er náttúrulega bilun
Kvenlegir klækir
Nú hafið þér lært að bera kennsl á farandtittling. Skynsamlegast væri fyrir yður að losa yður við hann. En hvað ef þér viljið halda honum? Halda áfram að lesa
Eruð þér í tygjum við farandtittling?
Nú hafið þér átt nokkur stefnumót við sama kavaléra. Hann kemur fram af kurteisi og virðist hinn dægilegasti maður. Þó skuluð þér hafa hugfast, áður en þér gefið honum hug yðar og hjarta, að til eru fleiri tegundir fjöllyndismanna en flagarinn. Halda áfram að lesa
Ætlið þér að fara á stefnumót?
Í fyrri viku var ungum konum kennt að umgangast flagara. Til eru fleiri tegundir kvennabósa en flagarinn en munurinn er sá að flagarinn er auðþekkjanlegur. Halda áfram að lesa
Hvernig yngismey ber að umgangast flagara
Að mörgu þarf að huga þá er unga konan hyggst stíga sín fyrstu skref á braut ástalífsins. Meðal þess sem hún þarf að læra, er að varast viðsjárverða menn sem kunna að hafa vafasöm áform. Halda áfram að lesa
Lítil saga af búrapa
Lítil saga af búrapa.
Ég sendi opinberri stofnun fyrirspurn um hversu langan tíma ég hefði til að leggja fram formlegt erindi. Viika leið en ég fékk ekkert svar. Ég ítrekaði fyrirspurnina og fékk þær upplýsingar að hún hefði verið „send í vinnslu til lögfræðings.“
Ég spurði hvort væri rétt skilið að starfsmaðurinn vissi ekki hvaða reglur giltu hjá embættinu eða hvar hægt væri að nálgast þær. Fékk þá strax fullnægjandi svar ásamt afsökunarbeiðni (nefni þessvegna ekki stofnunina.)
Stundum dettur mér í hug að almennir starfsmenn séu notaðir til að sía frá þá sem hafa ekki tíma til að krefjast svara.
Skemmtileg skilti
Á netinu er að finna urmul mynda af óvenjulegum götuskiltum. Því miður fylgir ekki alltaf sögunni hvar myndirnar eru teknar og oft rennir mann í grun að hann Fótósjoppmundur hafi komið við sögu.
Mér skilst að þetta skilti sé í Danmörk en nánari staðsetningu veit ég ekki Halda áfram að lesa