Mér hefur sennilega aldrei á ævinni liðið betur í hjartanu en í augnablikinu hef ég áhyggjur af því að ég verði svo áhyggjufull yfir orkuinntöku minni, að það endi með því að ég fari að elda eins og ég sé í vist hjá Grýlu og jólasveinunum. Það er gott að hafa lúxusáhyggjur. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Dindilhosan (léttmeti)
Sukk
Ég er ekki feit og aldrei verið svo feit að ég myndi líta á það sem vandamál hjá einhverjum öðrum en sjálfri mér, en þrátt fyrir það er fátt sem ég óttast meira í lífinu en að fitna. Flestum sem þekkja mig finnst það ótrúlegt því ég lít hvorki út né hegða mér eins og anorexíusjúklingur. Ég hef aldrei neitað mér um neitt en fólk sem „passar línurnar“ virðist alltaf vera að láta eitthvað á móti sér. Halda áfram að lesa
Matreiðslufíkn 2
Ég viðurkenni að ég á það til að fara offari í eldhúsinu. Það er nefnilega þannig að sumir bregðast við kvíða með ofáti, fara á eyðsluflipp ef þeir reiðast eða drekka frá sér áhyggjur. Ég geri það nú ekki, en ef ég er ekki í fullkomnu jafnvægi, elda ég allt sem tönn á festir. Það hefur komið fyrir mig að vera allt í einu búin að setja upp hlaðborð þótt ég eigi ekki von á neinum í mat, jájá, þetta er náttúrulega bilun, ég er ekkert að neita því. Halda áfram að lesa
Matreiðslufíkn
Þegar Darri var lítill hélt hann því staðfastlega fram að hann fengi aldrei neitt að borða nema afganga. Þótt ég kannist reyndar ekki við að hafa átt stórfelld viðskipti við afgangabúðir er sannleikskorn í þessari fullyrðingu. Ég elda oft ríflega og nota svo „afganginn“ í annan rétt daginn eftir. Ekki til að spara vinnu, heldur af því að ég finn oft fyrir fyrir knýjandi þörf til að elda meira en við borðum. Það er náttúrulega bilun en geðveiki er hluti af lífinu svo mitt fólk verður bara að lifa við stöðuga afgangamatseld. Halda áfram að lesa
Baukablæti
-Sjáðu hvað ég fann innst í eldhússskápnum! sagði ég, fagnandi.
-Nei sko, fannstu einn baukinn enn, sagði Eynar, það var mikil hamingja.
-Ég get sett baunirnar í þennan.
-Já en eru skáparnir ekki fullir af tómum döllum og baukum sem þú hefðir getað notað undir baunir?
-Jú en ég vil geyma þá.
-Nú? Af hverju?
-Svo sé hægt að setja eitthvað í þá. Halda áfram að lesa
Paradísarfugl handa Ragnari Þór
Ragnar Þór Pétursson vekur athygli á tengingu Paradísarfugls Megasar við Brúðarnótt Davíðs frá Fagraskógi. Og ég má bara til að ræða þetta aðeins. Halda áfram að lesa
Nei, því miður
Allar 350 skóbúðirnar í miðborg Glasgow eru troðfullar af sandölum sem allir eiga það sameiginlegt að vera með sóla á þykkt við flatkökur og álíka sveigjanlega og ofnplötur. 90% þeirra eru auk þess alsettir pallíettum, glerperlum og plastblómum. Í dag fann ég loksins það sem mig vantaði en áður fór ég í ekki færri en 20 skóbúðir og ég er ekki að grínast; neðangreint samtal er ekki einu sinni fært í stílinn.
Afgreiðslustúlkan: Get ég aðstoðað?
Eva: Það vona ég. Ég er að leita að sandölum sem eru ekki með neinu glitrandi skrauti og betri botni en þessir hérna. Það þarf að vera hægt að ganga á þeim.
Afgreiðslustúlkan: Því miður erum við ekki með neina skó sem hægt er að ganga á.