Í morgun stöðvaði ég bílinn tvisvar sinnum til að hleypa gangandi fólki yfir götu. Í bæði skiptin sáu ökumenn bílanna fyrir aftan mig ástæðu til að þenja flautuna. Í öðru tilvikinu stoppaði ég á grænu gangbrautarljósi. Í hitt skiptið við elliheimili. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Er íþróttaálfurinn útsendari Orkuveitunnar?
Ég hef ekki kynnt mér þetta orkuátak íþróttaálfsins sérlega vel en ég veit að það er mikil orka í súkkulaði en engin í vatni. Þessvegna finnst mér svolítið skrýtið að börn fái orkustig fyrir að drekka vatn en ekki fyrir að gúlla í sig sælgæti. Ætli sé kannski reiknað með því að vatninu sé hvolft ofan í þau og fallþungi þess nýttur til raforkuframleiðslu?
Aldrei hef ég heyrt neinn tala um orkuátak þegar fullorðið fólk forðast óhollan mat og hreyfir sig. Venjulega er svoleiðis átak kallað megrun eða þjálfun. Markmiðið er að brenna orku, byggja upp vöðva og auka úthald. Sé þessu haldið áfram lengur en nokkrar vikur heitir það heilsusamlegt líferni.
Markmið Latabæjar er væntanlega að hvetja til heilsusamlegs lífernis með nokkurra vikna hreyfingar- og hollustuátaki (þótt reyndar sé vafasamt að allt sem gefur orkustig sé hollt). Hversvegna í ósköpunum það er kallað orkuátak er mér hulin ráðgáta.
Sonur minn Byltingin telur það vísbendingu um að íþróttaálfurinn sé á mála hjá Orkuveitu Reykjavíkur og öðrum útsendurum Stóriðjudjölufsins. Ég efast um það. Held að þetta sé bara venjulegt málfarsklúður.
Þetta var málfarsnöldur dagsins. Titillinn er bara eyrnakrækja.
leytast eftir kinlýfi
Í dag er það orðatiltækið að leita eftir eða að leitast eftir sem ég ætla að nöldra yfir.
Við leitum að hlutum eða sækjumst eftir þeim og leitumst við að finna bestu lausnina.
Ennþá hroðalegri útgáfa af þessu klúðri er algeng á vefnum einkamal.is. Þar er nokkuð um að giftir mennn og graðir, sætir og saklausir eða feitir og forvitnir séu að leytast eftir kinlýfi. (Gjarnan með börnum ef eitthvað er að marka Kompás.)
Afhverju er samkynja samband betra?
Ég átta mig nú ekki alveg á þessu. Af hverju ætti fólk frekar að vilja pappírshjónaband við einhvern af sama kyni? Varla skiptir máli þetta lagaákvæði um að það þurfi að “liggja fyrir” að hjónabandið hafi verið “fullkomnað”? Ef fólk er tilbúið til að giftast einhverjum fyrir ríkisborgararétt, er það þá ekki alveg eins tilbúið til staðfesta að slík “fullkomnun” hafi átt sér stað? Varla getur það “legið fyrir” á annan hátt.
Annars finnst mér voða skrýtið þetta orðalag að hjónabandið hafi verið “fullkomnað”. Ég held að í hinum vestræna heimi amk sé algengast að fólki fullkomni með sæg manna og/eða kvenna sem það er ekki gift.
Ég var einu sinni gift manni. Það var svosem ágætt hjónaband en mjög langt frá því að vera fullkomið. Samt eignaðist ég tvö börn með honum.
Hugljúf
Ég ætti að kvíða marsmánuði. Undanfarið hef ég verið í fríi á kvöldin og finnst satt að segja mjög notalegt að kúra undir teppi í náttfötum, lesa eða horfa á sjónvarpið og fara snemma að sofa. Ég býst ekki við að verði mikill tími til þess í næsta mánuði en mér er alveg sama. Halda áfram að lesa
F—itt
Í dag hafði ég hugsað mér að senda Ökuþórinn í verslunarleiðangur og njóta þess að þurfa hvergi nærri því að koma. Hann hringdi um kl 11 til að segja mér að bíllinn væri bilaður. Það er ekki ímyndun í honum. Afi hans dró bílinn heim.
Á mánudaginn fór ég með bílinn í smurningu og aðalskoðun og lét bóna hann.
Darri kominn með bílpróf
Sonur minn Ökuþórinn (sem er ekki lengur Pysja) varð 17 ára í gær. Og tók bílpróf! Fyrir mig er það ígildi byltingar. Nú get ég látið hann fara í Bónus. Ég er frjáls!
Byltingin er hinsvegar íhaldssamari.