Þegar Byltingin mætti til afplánunar inn í Hverfisstein, stundvíslega kl. 13 þann 6. ágúst, munaði litlu að hann þyrfti að brjóta sér leið inn. Engin kannaðist við að eiga von á honum og hann var m.a.s. beðinn að leggja fram boðun í afplánun til sönnunnar. Það vildi svo vel til að hann var með boðunina með sér, svo hann losnaði til að fremja glæp á staðnum til að fá inngöngu. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Forgangsmálin
Sonur minn Byltingin var dæmdur til 18 daga fangavistar fyrir að trufla stóriðjufyrirtæki við þá iðju sína að eyðileggja jörðina. Þetta er algengur dómur fyrir ölvunarakstur enda mun dómskerfinu þykja það álíka alvarlegur glæpur að stofna lífi og limum vegfarenda í hættu og að minna stjórnvöld og stórfyrirtæki á að til er fólk sem ætlar ekki að horfa aðgerðarlaust upp á náttúruspjöll og mannréttindabrot í þágu áliðnaðarins.
Inn vil ek!
Þegar Byltingin mætti til afplánunar inn í Hverfisstein, stundvíslega kl. 13 þann 6. ágúst, munaði litlu að hann þyrfti að brjóta sér leið inn. Engin kannaðist við að eiga von á honum og hann var m.a.s. beðinn að leggja fram boðun í afplánun til sönnunnar. Það vildi svo vel til að hann var með boðunina með sér, svo hann losnaði til að fremja glæp á staðnum til að fá inngöngu. Halda áfram að lesa
Forgangsmálin
Sonur minn Byltingin var dæmdur til 18 daga fangavistar fyrir að trufla stóriðjufyrirtæki við þá iðju sína að eyðileggja jörðina. Þetta er algengur dómur fyrir ölvunarakstur enda mun dómskerfinu þykja það álíka alvarlegur glæpur að stofna lífi og limum vegfarenda í hættu og að minna stjórnvöld og stórfyrirtæki á að til er fólk sem ætlar ekki að horfa aðgerðarlaust upp á náttúruspjöll og mannréttindabrot í þágu áliðnaðarins. Halda áfram að lesa
Þetta er náttúrulega bilun
Í dag hringdi fréttamaður í mig og spurði hvort Saving Iceland bæri ábyrgð á rafnmagnsbilunni í Hvalfirðinum. Ég gat ekki staðfest það enda er Saving Iceland hreyfing en ekki skipulögð meðlimasamtök.
Mér hefði þótt ánægjulegt ef álverin hefðu orðið fyrir skaða en það varð því miður ekki.
Kannast ekkert við málið … ?
Löggan kannast ekkert við það nei?
Uhh? Ég hef allavega fengið að tala við hana með því að hringja í Hegningarhúsið á Skólavörðustíg og Haukur segist hafa heimsótt hana þangað núna áðan.
Þeir hafa líklega bara boðið henni vinnu með fæði og húsnæði á Skólavörðustígnum og hún eitthvað misskilið það.
Bein aðgerð
Þetta er dæmi um beina aðgerð.
Hér eru á ferð ungir menn sem bíða ekki eftir því að ríkisvaldið leiðrétti reglu sem þjónar engum tilgangi og býður upp á persónunjósnir, heldur grípa sjálfir til aðgerða sem valda andstæðingum þeirra óþægindum. Mér finnst það gott hjá þeim.
Hún var náttúrulega ekki í haldi lögreglu, heldur í haldi fangelsismálastofnunar. Það skal enginn segja mér að þeim á Hverfisgötunni hafi verið ókunnugt um dvöl Tukthússlimsins á Skólavörðustígnum. Í minni sveit heitir þetta útúrsnúningur. Ég velti tilgangnum fyrir mér.