Stuðningur eða meðferð?

images-1Á vef kirkjunnar kemur fram að Vinaleið, „kærleiksþjónusta í grunnskólum“ sé ekki meðferðarstarf heldur stuðningsviðtöl og sálgæsla. Jafnframt kemur fram að dæmi séu um að nemendur sæki slík sálgæsluviðtöl 6 tíma á viku. Ég mætti um tíma í vikuleg viðtöl hjá sálfræðingi og það var kallað meðferð. Ég hef ekki fundið útskýringu kærleiksþjónanna á muninum á stuðningi og meðferð. Getur einhver sagt mér í hverju munurinn liggur?

Þetta útálandilið …

þorrablótÉg vona að allir samkynhneigðir sem eru í sambúð flytji lögheimilið sitt til Bolungarvíkur og flykkist á þorrablótið. Ég vona líka að peysufatalufsurnar sem standa fyrir þessari (vonandi) eindæma mismunun, fái sveppasýkingu í klofið og klæðist því þjóðlegum ullarbrókum með gati í skrefbótarstað á umræddu blóti, drekki sig á peruna og fletti pilsunum upp um sig svo dýrðin blasi við þessu hrútspungaétandi sjálfsbirgingspakki.

Allir fá jafnt

Ójöfnuður hefur ekki aukist. Allir samfélagshópar hafa hækkað álíka mikið í tekjum (eða um 100%), hinir tekjulægstu jafnvel eilítið meir en hinir. Þannig hafa þeir sem höfðu 60.000 kr á mánuði 1993, 120.000 í dag en þeir sem höfðu 1 milljón áður um 2 milljónir í dag.

Hvað eru menn svo að tala um aukinn ójöfnuð? Þetta eru pottþéttir útreikningar sem sýna að jöfnuður er í raun mun meiri nú en fyrir 15 árum.

Frægir í form

Uhh! Ég þekki ekki nema helminginn af þessu fræga fólki, sem segir nú reyndar meira um minn áhuga á fræga fólkinu en frægð þess. Hitt finnst mér svindl að fjórir af þessum sex eru bara í fínu formi. Ekki á ég eftir að nenna að fylgjast með þessum þáttum.

Leikur

Bendi öllum sem styðja a.m.k. lágmarks mannréttindi á þessa síðu. Reyndar virðist sem ekki sé hægt að finna það fólk sem hefur skráð sig með því að slá inn nafn en netföng virka.

Þarna plataði ég ykkur – en þar sem er líklegra að fólk skoði færslu með fyrirsögninni „leikur“ en „mannréttindi“, skammast ég mín ekkert.

Í Gvuðs nafni

Þetta hlýtur maður að skilja þannig að það sé mjög mikilvægur þáttur í trúnni að níðast á samkynhneigðum. Eða hvernig getur það annars hindrað fólk í því að ástunda sitt trúarrugl þótt tveir karlar deili rúmi á hóteli eða tvær konur leigi sal fyrir brúðkaupsveislu?

Af hverju beitir þetta heilaga lið sér ekki fyrir því að einstæðar mæður verði grýttar til bana? Þær eru þó allavega samfélagsbaggi.

Gegt

KjarvalDjöfull finnst mér það skítt þegar öll geðræn vandamál eru notuð sem rök gegn sjálfstæðri hugsun . Nú þekki ég ekki ástandið á Jóhannesi Kjarval síðustu mánuðina sem hann lifði svo ég ætla ekki að dæma um akkúrat þetta mál en rökin sem koma fram í þessari frétt þykja mér veik. Geðveiki er ekkert endilega sönnun þess að maður sé ekki fær um að ákveða hvað hann gerir við eigur sínar, ekki frekar en elli. Sjálfsagt getur geðveiki stundum haft þau áhrif, rétt eins og líkamleg veikindi geta í sumum tilvikum gert fólk ósjálfbjarga en geðsjúkdómar eru af ýmsum toga og það er ekki samasemmerki milli geðveiki og þess að vita ekki hvað maður er að gera.

Ef út í það er farið er enginn fullkomlega heilbrigður.