Álög

Hér er fjöllin líkust svörtum sandhrúgum, flöt að ofan eins og krakki hafi klappað ofan á þau með plastskóflu og ná alveg fram í sjó. Stundum sér maður endur á vappi uppi í fjalli þar sem fjaran er engin. Þorpið kúrir undir fjallinu, sveipað grárri móðu hversdagsleikans jafnt sem móðu þokunnar. Hér er ljótt. Halda áfram að lesa →

Ummyndun

Þú varst mér allt, þú varst mér lífið
sólarskin í daggardropa
logn í regni, rökkurblíðan
haustið rautt á greinum trjánna
tungl í myrkri, mönnum ofar
falskur eins og fjallabláminn

Ding!

Ding!!!

Ding! syngur veröldin,
ding!
Klingir þakrenna í vindinum,
ding!
Þaninn strengur við fánastöng,
ding!

Hringja bjöllur
í elskendaálfshjörtum
ding, ding!

Sett í skúffuna í febrúar 1991

Draumur

Stjörnum líkur
er smágerður þokki þinn.
Ég vildi vera ævintýr
og vakna í faðmi þínum,
kyssa fíngerð augnlok þín
og líða
inn í drauma þína
undir dökkum bráhárum.

Sett í skúffuna í janúar 1991