Líf í felum

Hvernig er líf ólöglegs innflytjanda í samfélagi sem er svo fámennt að það er engin leið að hverfa í fjöldann? Eftir 13 mánuði í felum á Íslandi er Mouhamed Lo kominn með nokkuð góða mynd af því.

Að vera í felum á Íslandi er þúsund sinnum betra en að vera þræll í Máritaníum. Það er líka töluvert skárra en að vera í fangelsi af því að vinir geta allavega komið í heimsókn þegar þeim hentar og í felum er hægt að hafa einhverja stjórn á daglegu lífi eins og t.d. því hvað maður borðar. Og það skiptir máli.

En líf í felum hefur samt ókosti sem ég efast um að nokkur skilji til fulls nema hafa upplifað það.

Allt sem ólögleg manneskja gerir felur í sér áhættu

Ólögleg manneskja getur ekki búið hvar sem er. Það krefst ákveðinna skilyrða að hýsa ólöglegan flóttamann, þú getur t.d. ekki gert það ef er mikill gestagangur hjá þér og algengt að fólk droppi í heimsókn án þess að gera boð á undan sér því það eykur áhættuna ef margir vita af dvalarstað hans. Af sömu ástæðu er ekki hentugt fyrir fólk sem er með börn og unglinga á heimilinu að hýsa flóttamann.

Meðan Mouhamed var í felum gat hann ekki látið sjá sig í fjölmenni. Ef þú ert ólögleg manneskja er það glæpur að ganga á almennri gangstétt. Jafnvel þótt Mouhamed væri ekki eftirlýstur var alltaf sá möguleiki fyrir hendi að einhver rasistinn bæri kennsl á hann og ef lögreglan fær tilkynningu um glæp þá ber henni að sjálfsögðu að bregðast við.

Af þessum sökum eyddi Mouhamed stærstum hluta þessarra 13 mánaða innandyra. Hann fór út þegar hann var gjörsamlega að verða brjálaður en það var alltaf áhætta.
Hann langaði út. Hann langaði að spila fótbolta en það lærði hann í Noregi og finnst það mjög gaman. Hann langaði í sund og hann langaði að ganga við hliðina á vinum sínum. Ef maður er ólögleg manneskja þá eru þessir hlutir bara ekkert í boði.

Mikill fjöldi manns hefur stutt Mouhamed á einhvern hátt. Fyrir nokkrum vikum voru haldnir styrktartónleikar þar sem fjöldi manns gaf vinnu sína og ennþá fleiri mættu. Mouhamed langaði að sjálfsögðu að mæta. Hann langaði að sjá allt þetta fólk sem hefur sýnt honum stuðning. Hann langaði líka að þakka fyrir sig en hann kann að segja „takk fyrir“ á Íslensku. En það hefði verið of mikil áhætta fyrir kolsvartan mann að sjást á Laugaveginum á laugardagskvöldi, hvað þá í grennd við stað þar sem tónleikar til styrktar ólöglegum manni fara fram. Þetta er bara eitt dæmi um litla hluti sem þó skipta máli sem fólk í þessari stöðu þarf að neita sér um.

 

 

Hvað gerist nú í máli Mouhameds?

Þótt Mouhamed Lo eigi ekki lengur á hættu að vera sendur til Noregs er málinu síður en svo lokið. Það sem getur gerst er eftirfarandi:

-Útlendingastofnun getur ákveðið að senda hann til Máritaníu. Það er mjög ólíklegt að sú verði niðurstaðan. Íslendingar hafa hingað til látið aðrar þjóðir um að taka ábyrgð á slíkum voðaverkum. Halda áfram að lesa

Af hverju fór Mouhamed í felur?

Mouhamed fór í felur vegna þess að það var eina leiðin sem hann gat farið til þess að bjarga sjálfum sér frá þrældómi og pyndingum.

-Mouhamed flúði frá Noregi af því að Norðmenn ætluðu að senda hann til Máritaníu.
-Útlendingastofnun á Íslandi hafnaði hælisumsókn Mouhameds.
-Hann fékk tilkynningu um brottvísun til Noregs, enda þótt Norðmenn væru búnir að tilkynna Íslendingum að þeir myndu senda hann til Máritaníu.
-Mouhamed kærði úrskurðinn og fór fram á frestun réttaráhrifa. Það merkir að hann vildi fá að vera kyrr á Íslandi á meðan málið væri í áfrýjunarferli.
-Innanríkisráðherra synjaði honum um frestun réttaráhrifa, ætlaði semsagt að senda hann til Noregs, vitandi að hann yrði sendur þaðan til Máritaníu. Halda áfram að lesa

Ef Norðmenn banna Ögmundi að bjarga þrælum ….

Ögmundur Jónasson má eiga það að hann svarar bréfum. Það gera ekki allir stjórnmálamenn. Í dag svaraði hann stuttu erindi frá mér um málefni strokuþrælsins frá Máritaníu. Hann er ósáttur við umræðuna um störf sín og bendir mér á að lesa grein sem hann birtir í dv í dag sem svar við ásökunum um að hann skýli sér bak við Dyflinnarákvæðið. Halda áfram að lesa

Fréttir af Mouhamed Lo – frá Hauki Hilmarssyni

Það nýjasta sem er að frétta af máli Mohammeds Lo:

Í desember fór Mohammed fram á að honum yrði skipaður tiltekinn lögmaður sem hefur mikinn áhuga á máli hans. Þegar sá fór fram á að fá gögnin afhent, var honum tjáð að þar sem Mohammed hefði þegar verið skipaður annar lögmaður, væri það ekki í boði. Halda áfram að lesa