Myndin hans Árna Beinteins frumsýnd

images (3)Nýjasta stuttmyndin hans Árna Beinteins var frumsýnd í dag. Í sal 1 í Háskólabíó. Kampavín og allt og Nornabúðarinnar getið á kreditlistanum 🙂 Drengurinn er snillingur.

Ég fékk Önnu og börnin hennar til að koma með mér í bíóið. Fórum í ísbúð á eftir, bara til að líkja eftir sumri þótt sé sami helvítis skítakuldi og venjulega og hefði líklega verið skynsamlegra að laga kakó.

Mig langar svo út til Danmerkur að heimsækja systur mína. Upplifa alvöru sumar. Fara með strákana í Lególand. Sitja á veröndinni í hlírakjól og drekka bjór og hlusta á Eika glamra á gítarinn á kvöldin. Tala við Hullu langt fram á nótt, úti í myrkrinu en vera samt ekki kalt.

Kuldi er ekki hugarástand heldur mjög raunverulegt, mælanlegt ástand. Það gerir mig brjálaða að sjá grænt gras, finna lykt af vori en komast samt aldrei út úr húsi nema í ullarpeysu. Ef Kuldaboli væri áþreifanlegur myndi ég bíta af honum hausinn.

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Myndin hans Árna Beinteins frumsýnd

  1. —————————–

    já, þetta eilífa rok í sól getur verið þreytandi

    Posted by: baun | 1.05.2008 | 20:30:22

    —   —  —

    grát grát…. Komdu bara, þú ert bara svo velkomin elsku systir mín 🙂
    Þú mátt meiri að segja hengja allan þann þvott sem þig dreymir um, upp á úti snúrurnar, rest geri ég. Og þó að Eiki sé búinn að setja niður allar karteflur, þá mátt þú dunda þér við að plokka þær upp…. Sakna þín svvvoooo.!!!!!
    Elska þig 🙁

    Posted by: Hulla | 2.05.2008 | 0:09:47

Lokað er á athugasemdir.