Snúðug

Fréttablaðið hafði samband við mig í gær til að kanna hvort ég væri búin að fá mannskap í verkefnið.

imagesÉg sendi inn nýlega mynd, samkvæmt ósk blaðamanns en annaðhvort hefur honum ekkert litist á hana eða hann hefur verið að flýta sér of mikið til að bíða eftir tölvupóstinum. Allavega byrjaði ég daginn á hláturskasti því honum hefur tekist að grafa upp einhverja hroðalegustu mynd sem nokkurntíma hefur verið tekin af mér. Ég myndast ýmist eins og ég sé andsetin, gröð eða geðveik en á þessari mynd er ég BARA pirruð. Kjálkarnir samanbitnir og augnráðið eitthvað mitt á milli vandlætingar og reiði. Ef marka má hárið á mér hef ég líka verið nývöknuð þegar hún var tekin.

Ég verð að viðurkenna að þótt fegurð minni sé stórlega ábótavant á þessari mynd, hæfir hún tilefninu einkar vel. Ef ég hefði skrifað greinina hefði hún endað á orðunum … sagði nornin, heldur snúðiglega.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Snúðug

  1. ————————-

    Verð að segja að þessi mynd er kröftug en alls ekki vond af þér – ákveðin norn á ferðinni 🙂

    Posted by: Siggadís | 13.06.2007 | 10:31:47

    —————————————–

    Var myndin tekin á nornavöku? Þetta er eins og úr djöflamynd frá Hollywood. 🙂

    Posted by: Þorkell | 15.06.2007 | 8:39:46

Lokað er á athugasemdir.