Mannanafnanefnd hefur samþykkt nokkur nöfn til viðbótar en foreldrar Christu litlu verða enn um sinn að sætta sig við að nafn hennar sé ólöglegt. Sú ákvörðun stenst enga rökvísi enda eru fjölmörg nöfn með samstöfunni ch á mannanafnaskrá og nafnið fellur prýðilega að beygingakerfinu. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Mannanafnanefnd
Mær um Mey
Íslendingar eru svo lánsamir að njóta leiðsagnar sér viturra fólks í flestum efnum. Þannig hefur blessað yfirvaldið t.d. á að skipa nefnd sérfróðra manna sem hefur þann starfa að hafa vit fyrir sauðmúganum þegar hann gefur börnum sínum nöfn. Það er líka eins gott því ef mannanafnanefndar nyti ekki við má ætla að fólk myndi nota tækifærið til að niðurlægja börnin sín með því að nefna stúlkur Íngismey Flatlús og drengi Jónabdullah Facebook Fiðrildareður. Halda áfram að lesa
Hvað á barnið að heita?
Eins og ég hef áður sagt frá hefi ég einstakt dálæti á störfum mannanafnanefndar og þeirri dásamlegu rökhyggju sem liggur að baki ákvörðunum hennar og lögum um mannanöfn. Halda áfram að lesa
Nokkur dæmi um rökvísi mannanafnalaga
Markmið mannanafnalaga er að stuðla að því að Íslendingar beri nöfn sem falla að beygingar- og hljóðkerfinu, lúti almennum stafsetningarreglum og séu fólki sæmandi. Þegar listinn yfir leyfð mannanöfn er skoðaður kemur þó í ljós að undantekningarnar frá reglunum eru svo margar að reglurnar eru nánast ónothæfar. Við skulum líta á nokkur dæmi: Halda áfram að lesa