Alla sína skólagöngu vörðu synir mínir tveimur kennslustundum á viku til þess að læra hluti sem þeir hefðu lært hvort sem er. Á þeim tíma velti ég því oft fyrir mér hvort það sé í raun skynsamlegt að kenna heimilisfræði í skólum. Synir mínir kunnu að panta pizzu 10 ára. Ég er hinsvegar ekki viss um að þeir viti ennþá hvað úrvalsvísitala er.
Rökrétta leiðin til að uppræta einelti
Einelti og annað ofbeldi meðal skólabarna er vandamál sem flestir eru sammála um að eigi að stöðva en það reynist oft æði erfitt. En baráttan er ekki vonlaus. Það er hægt að uppræta einelti…. Halda áfram að lesa