Kannski svona?

Kaupsamningur í höfn en ég finn ekki fyrir neinni sérstakri hamingju. Samt er í búðin fín, fékk m.a.s. sérfræðing til að taka hana út og hann staðfesti að allt væri í toppstandi. Fæ afhent 1. des. sem er líka kostur. Þurfti ekkert að vinna í gærkvöldi og morguninn var skítléttur en samt er ég einhvernveginn dauðþreytt og andlaus, allt að því döpur. Langar ekki einu sinni að hitta neinn. Halda áfram að lesa →

Hitti Fangóríu

Hitti Fangóríu á kaffihúsi í dag. Hún ætlar að kynna mig fyrir fríðum flokki eigulegra karlmanna svo nú þarf ég að reyna að hugsa upp 3 þrautir til að fækka í úrtakinu.

Blóð mitt argar á phenylethylamin og það eru hreinlega takmörk fyrir því hversu miklu súkkulaði hægt að gúlla í sig án þess að veikjast.