Samfylkingin var upphaflega stofnuð til að sameina fólk sem taldi sig til vinstri í samfélagsmálum, þ.e.a.s. félagshyggjufólk. Það tókst að vísu ekki fullkomlega þar sem sumt „vinstrafólk“ vildi frekar verða beinir arftakar Alþýðubandalagsins en að taka þátt í sameiningu allra á vinstri vængnum. Reyndar virðast Vinstri Græn hvorki vera sérstaklega vinstrisinnuð né græn miðað við framgöngu sína á kjörtímabilinu, og það er táknrænt að þau ætli að ljúka því með því að samþykkja milljarða styrki til þeirra stórkapítalista sem vilja byggja stóriðju á Bakka, með tilheyrandi náttúruspjöllum vegna nauðsynlegra virkjana. En það er annað mál …
Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Samfylkingin
Það sem Árni Páll myndi gera, vildi hann afla sér virðingar
Því hefur verið haldið fram að ekki sé „hægt“ að koma stjórnarskrárfrumvarpinu gegnum þingið. Þetta er rangt; það snýst um vilja. Þeir þingmenn sem helst eru nefndir sem líklegir til að standa í vegi fyrir málinu innan Samfylkingarinnar eru Ásta Ragnheiður þingforseti, Össur og Kristján Möller. Svo vel vill til að sá síðastnefndi mun verða fjarverandi til þingloka, og varamaður kominn í hans stað.
Hverjir eru svikararnir?
Margt innanbúðarfólk í Samfylkingunni sem reynt hefur að verja fótaskot formannsins síðustu sólarhringa hefur haldið fram að það sé einfaldlega ekki meirihluti fyrir því á þingi að samþykkja nýja stjórnarskrá. Karl Th. Birgisson sem gjarnan tjáir sig um slík mál eins og hann viti meira en almennt er þekkt (en tilheyrir þeim málefnalega veikburða hópi á Eyjunni sem ekki leyfir athugasemdir við blogg sín) gengur skrefi lengra, og heldur fram að ekki einu sinni væri meirihluti fyrir því að stöðva það málþóf sem ljóst er að þingmenn Sjálfstæðisflokks (og sumir Framsóknarþingmenn) myndu beita ef þeir vissu að það kæmi í veg fyrir framgöngu málsins.
Árni Páll, foringjaræði, flokkshollusta
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði í gær að ekki væri hægt að koma nýrri stjórnarskrá í gegnum þingið fyrir kosningar. Margir hafa orðið æfir yfir þessu, þar á meðal sumt flokksbundið Samfylkingarfólk. Flestir stuðningsmenn flokksins virðast hins vegar algerlega ráðvilltir, þótt sumir reyni af veikum mætti að bera í bætifláka fyrir formanninn, en nokkrir meðal þeirra sem mest hafa völdin og áhrifin í flokknum taka beinlínis undir þessar yfirlýsingar formannsins, með sömu „rökum“.
Samfylkingin, forsetinn og fasisminn í Kína
Eftirfarandi hugleiðingar hafa, þótt þær séu ekki nýjar, vissulega sprottið upp nú vegna kaupa Huangs Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Það ætti að vera eðlilegt, í ljósi þess að maðurinn er fyrrum háttsettur starfsmaður ógnarstjórnarinnar í Kína, að hann efnaðist illskiljanlega á örskömmum tíma og þess að kínversk stjórnvöld hafa hönd í bagga með þessum kaupum, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Halda áfram að lesa