Verði búð og það varð búð – Ný þáttaröð

Í fréttum er þetta helst:

Loksins sé ég fram á að hafa tíma til að sofa, borða, blogga og sinna öðrum frumþörfum mínum. Buðum vinum og ættingjum í kaffi í gær og í dag opnar míns eigins ostagerð; fullkomna búðin okkar Eyrúnar seyðkonu; Nornabúðin -hin eina sinnar tegundar á Íslandi, formlega á Vesturgötu 12. Hinn illi Mammon hefur lagt blessun sína yfir oss, dýrð sé honum. Halda áfram að lesa →

Kukl

-Hvað ertu eiginlega að gera? spurði Elías
-Útbúa dræsugaldur, svaraði ég.
-Dræsugaldur???
-Já, þessir hlutir sem þú sérð hér á borðinu eru notaðir til að galdra vörtur, líkamshár og fleira ógeðsbögg á dræsur sem manni er illa við, útskýrði ég og kepptist við að sauma. Halda áfram að lesa →

Sem skiptir öllu máli

-Elska ég þig?
-Ætti ég ekki að spyrja þig að því?
-Elska ég þig eins og á að elska?
-Þú ert góður við mig. Mér líður vel með þér.
-En svarar samt ekki spurningunni?
-Drengur sem ég þekki sagði einu sinni að það hversu mikið maður elskar einhvern ráðist af því hversu heitt maður þráir návist hans.
-Hann á við að ástin sé eigingjörn?
-Hvað heldur þú um það? Halda áfram að lesa →

Leyndarmál

-Áttu leyndarmál? segi ég við Elías.
-Allir eiga leyndarmál, svarar hann.
-Ég á ekki við þessi venjulegu leyndarmál sem konur segja bara einum í einu og karlar bara kærustunni sinni eða besta vininum heldur alvöru leyndarmál sem þú segir engum.
-Allir eiga eitt eða tvö svoleiðis.
-Ekki ég.
-Nú lýgurðu.
-Nei, ég lýg ekki. Ég er sögupersóna og sögupersónur eiga ekki leyndarmál.
-Viltu að ég segi þér leyndarmál?
-Já takk.
-Finnst þér þá að þú eigir meira í mér?
-Nei. Þá finnst mér eins og þú sért af mínum heimi, sögupersóna eins og ég. Sem þarf engin leyndarmál. Halda áfram að lesa →

Grænblár

Ég hef ekki fengist við ljóðaþýðingar fyrr og var eiginlega að hugsa um að gefa verkið frá mér. Það er svo gott á ensku. Merkingin svo margræð og ég var alveg viss um að mér yfirsæist eitthvað. Búin að skoða margar túlkanir á netinu en vissi að eitthvað vantaði. Stundum er engu líkara en lausnin komi að ofan þótt ég efist um að guðdómurinn standi fyrir því sem kom fyrir mig í þetta sinn. Halda áfram að lesa →