Barnaverndarfúsk

Mér hefur þótt sumt af því sem fram hefur komið um mál Hjördísar Svan benda til þess að búið sé að hræra þokkalega í börnunum.

Það er óvenjulegt að 13 ára drengur kalli stjúpföður sinn „manninn“ í stað þess að nota nafn hans og hugleiðingar hans um að pabbar í Danmörku drepi oft börn, bendir til þess að umræðan á heimilinu hafi ekki verið laus við tilhneigingu til dramatiseringar. Halda áfram að lesa →

Ef Norðmenn banna Ögmundi að bjarga þrælum ….

Ögmundur Jónasson má eiga það að hann svarar bréfum. Það gera ekki allir stjórnmálamenn. Í dag svaraði hann stuttu erindi frá mér um málefni strokuþrælsins frá Máritaníu. Hann er ósáttur við umræðuna um störf sín og bendir mér á að lesa grein sem hann birtir í dv í dag sem svar við ásökunum um að hann skýli sér bak við Dyflinnarákvæðið. Halda áfram að lesa →

Sóðaskapurinn hjá DV

Í síðasta pistli varpaði ég fram spurningum sem vöknuðu hjá mér við umfjöllun Rásar 2 um mál Romylyn Patty Faigane frá Filippseyjum. Aðrar og ógeðfelldari spurningar vekur þessi umfjöllum DV um málið, m.a. spurningar um það hvort markmið fréttarinnar sé það að varpa gruni um skjalafals á stúlkuna eða einhvern úr fjölskyldu hennar að ósekju. Halda áfram að lesa →

Hvað höfðingjarnir hafast að

images (1)Og svona fyrst ég er farin að tala um Megas – sem án efa er mestur núlifandi ljóðsnillinga Íslands og hugsanlega allra tíma; ætli þeir sem hvað mest hafa hamast á Gillz vegna kvenfyrirlitningar hafi kynnt sér höfundarverk Megasar? Einhverjum ofbauð jú þegar hann orti um að telpur væru töfrandi frá tólf og niður í átta en ekki einu sinni það olli öðru eins fjaðrafoki og margra ára gömul bloggfærsla markaðsvæðingargaursins.

Halda áfram að lesa →