Haffi hringdi í mig hvað eftir annað um helgina. Ekki samt drukkinn, heldur á meðan hann var ennþá í vinnunni. Hafði ekkert að segja, sagðist bara langa að heyra í mér röddina. Ég held að hann hafi smá sektarkennd yfir því að hafa stefnt tveimur konum heim í einu um síðustu helgi. Það var ekki beinlínis þægileg upplifun að vakna með Brjóstfríði á rúmstokknum. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Æ þessi laugardagskvöld
Gísli Marteinn í sjónvarpinu. Drottinn minn dýri, að þeim hjá Ríkisútvarpinu skuli detta í hug að bjóða manni upp á þennan smeðjulega, síflissandi karltáning, hvert einasta laugardagskvöld. Og að þjóðin skuli velja þetta „sjónvarpsmann ársins“, hvílík smekkleysa, ég segi ekki meir. Halda áfram að lesa
Púsl
Kvikmyndakvöld hjá Kela. Ég fell jafn illa í þann hóp og alla aðra.
Er hætt þessu Háskólabrölti. Ég ætlaði hvort sem er aldrei að taka prófin, Fór þangað fyrst og fremst til að leita mér að félagsskap við hæfi en annaðhvort er Árnagarður á annarri bylgjulengd núna en fyrir 10 árum eða ég sjálf, sem er nú kannski líklegra. Halda áfram að lesa
Ilmur
Ég heimsótti félaga minn í gærkvöldi því hann þurfti að kynna mér smá verkefni sem hann vill fá mig til að vinna með sér. Það var kalt inni hjá honum svo hann lánaði mér peysu. Það var strákalykt af henni og mig langaði að grúfa andlitið niður í hana og andvarpa. En svoleiðis gerir maður ekki fyrir framan annað fólk. Allavega ekki fyrir framan eiganda peysunnar. Allavega ekki ef hann á konu. Eða unnustu eins og hann kallar hana. Halda áfram að lesa
Hver er þessi dularfulla stærðargráða?
Oft er viðeigandi að nota formlegt málfar fremur en hversdagslegt. Hins vegar er það alrangt sem sem sumir virðast álíta, að formlegt málfar eigi helst að vera uppskrúfað, jafnvel nánast óskiljanlegt. Dæmi um uppskrúfað og illskiljanlegt orð sem gjarnan er notað í fjölmiðlum er orðskrípið stærðargráða. Veit einhver hvernig stærðargráður eru reiknaðar? Hversu stórt er hús af þessari stærðargráðu eða byggðarlag af þessari stærðargráðu? Er stærðargráðan alltaf „þessi“ eða getur skóli verið af stærðargráðunni 480 eða bygging verið af stærðargráðunni 25? Mér skilst að stærðargráða sé til sem stærðfræðihugtak en ég efast um að þeir sem nota þetta orð í daglegu tali og í fjölmiðlum hafi nokkra hugmynd um hvað stærðargráður eru eða til hvers þær eru notaðar.
Þegar við komum fram opinberlega skiptir meira máli að fólk skilji það sem við segjum en að það átti sig á því hvað við höfum mikinn orðaforða. Ef formlegt málfar er okkur óeiginlegt, tölum þá frekar venjulega íslensku.
Í alvöru
Rakst á gamlan bólfélaga af tilviljun í dag. Hann spurði hvað væri að frétta og ég benti honum á að allt fréttnæmt (og einnig það sem ekki er í frásögur færandi) væri að finna á blogginu. Ég skrifaði slóðina á miða og hann horfði á mig opinmynntur. Halda áfram að lesa
Annars hefði hann dáið
Á kvöldin sit ég við glugga piparkökuhússins og horfi á tunglið yfir fjallinu. Stundum er það hvítt og kringlótt, hangir kyrrt í dimmbláu húminu og skín á litla hvíta steina sem börn hafa skilið eftir á skógarstígnum. Stundum veður það í grásvörtum draugaskýjum. Oftast er það sigð. Sigðin sem sker gluggatjöldin frá himnaríki. Halda áfram að lesa