Hvað er þetta eiginlega með rafvirkja? Það er eitthvað að rafmagninu hjá mér, slær út ef ég reyni að kveikja ljós eða setja eitthvert tæki í samband í eldhúsinu eða stofunni. Frekar óþægilegt að geta ekki eldað, lagað kaffi, notað sjónvarpið, tölvuna eða kæliskápinn nema með því að tengja framlengingarsnúru inn á bað. Ég er búin að hafa samband við tvo rafvirkja og biðja um aðstoð en þeir láta báðir eins og ég sé að heimta að þeir yfirgefi fjölskylduna til að eyða páskunum með mér á einhverjum ömurlegum stað eins og t.d. Bosínu eða Tálknafirði. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Þoka
Þoka. Næstum hægt að villast í vesturbænum. Söngla með disknum:
Minn fót og hönd þú hlekkja mátt
og hafa mig að þræli … Halda áfram að lesa
Í dag er ég fögur
Í dag er ég fögur. Vér fegurðardísir höfum nú brúkað rafknúnu keppahristuna mína tvo daga í röð og haldið hvor annarri félagsskap á meðan á meðferðinni stendur. Stefnum á titilinn „stinnasta vinkvennapar landsins á fertugsaldri“ í flokknum undir 160 cm. (Er þá átt við hæð en ekki breidd). Halda áfram að lesa
Nöldur dagsins
Einu sinni átti ég konu. Það voru góðir dagar. Verkaskiptingin á heimilinu var fullkomin. Hún þreif, ég eldaði. Hún sá um bókhaldið, ég gerði hagstæð innkaup. Halda áfram að lesa
Styð forsjárhyggjuna
Ég reikna með að flestir vina minna og kunningja séu æfir yfir hugmyndinni um reyklaus veitingahús. Rökin sem ég hef heyrt fyrir því að leyfa fólki að blanda andúmsloft annarra með ýmum hættulegum og óþægilegum eiturefnum eru t.d. þeir sem reykja hljóta nú líka að hafa einhver réttindi, það er nóg af reyklausum stöðum, og fólk þarf ekki að fara inn á veitingahús eða ráða sig þar til vinnu frekar en það vill. Halda áfram að lesa
Maðurinn sem vildi að dóttir sín yrði Íslandsmeistari
Einu sinni fyrir mörgum árum var ég næstum búin að eignast kunningja sem hét Indriði (hann hét reyndar ekki Indriði en það nafn lýsir honum miklu betur en hans eigið nafn svo ég nota það bara). Indriði var frekar klikkaður eins og flestir sem ég kynntist á þessum tíma bara ponkulítið of galinn til að ég vildi gera hann að almennilegum kunningja. Halda áfram að lesa
Náin kynni
Maður nokkur telur að náin kynni gætu leitt til þess að hann yrði ástfanginn af mér. Reyndar er það nú mín reynsla að þeir menn sem verða ástfangnir af mér eru undantekningalaust menn sem ég hef EKKI boðið upp á líkamlegt samneyti og mig rennir í grun að þarna séu einhver orsakatengsl. Þeir eru svo miklir veiðimenn í sér, þessar elskur. Eiginlega er hinn dæmigerði karlmaður einn eilífðar veiðimaður með titrandi tár. Halda áfram að lesa