Þessar 108 myndir ættu að gefa nokkuð góða hugmynd um árásarhneigð og ofsa meðlima samtakanna Saving Iceland.
Mynd nr. 68 er í uppáhaldi hjá mér enda er þetta grófasta dæmi sem ég hef séð um ögrandi framkomu þessa fólks. Halda áfram að lesa
Þessar 108 myndir ættu að gefa nokkuð góða hugmynd um árásarhneigð og ofsa meðlima samtakanna Saving Iceland.
Mynd nr. 68 er í uppáhaldi hjá mér enda er þetta grófasta dæmi sem ég hef séð um ögrandi framkomu þessa fólks. Halda áfram að lesa
Eru þetta ekki hvort sem er bara útlendingar?
Það er annars gott til þess að vita að fjölmiðlafulltrúi Impregilo skuli vera svo vel inni í öllu sem er að gerast á þessu stóra svæði að hann geti svona auðveldlega skorið úr um hvað er slúður og hvað raunveruleiki. Mér skilst að í nokkrum tilvikum þurfi verkamenn að ferðast í um 2 klst til að komast á vinnustaðinn (og svo annað eins heim aftur) svo það sér hver maður að það er ekkert smáræði sem Ómar leggur á sig til að fylgjast með því að gangi allt í vil í þessum Kardimommubæ hálendisins. Nema hann sé skyggn en það nú hreint ekki svo ótrúlegt.
Í vor fór einhverjum fréttum af því að „tugir Portúgala“ sem vinna við Kárahnjúka væru sáttir við aðstæður sínar og vísuðu á bug ásökunum um þrælahald. Ekki kom fram hvort það voru 2 tugir eða 9 tugir af þeim 300 Portúgölum sem þá unnu við Kárahnjúkavirkjun á vegum Impregilo.
Undanfarið hef ég velt fyrir mér skilningi múgans á orðinu „öfgamaður“. Ég hef hvergi rekist á neina almennilega skilgreiningu á fyrirbærinu, það virðist bara háð mati þess sem talar hverju sinni. E.t.v. mætti skilgreina öfgar á sama hátt og klám; „eitthvað sem á ekki rétt á sér af því að það ofbýður MÉR, núna, við þessar aðstæður“. Halda áfram að lesa
Íslandi blæðir því álrisans her
og atvinnunáttúruspellvirkjager
veður hér uppi og ábyrgðin er,
(svo einungis fáa við nefnum);
hjá gráðugum rottum, en gleðjumst með söng,
og gerum svo lista yfir heimilisföng
og hefnum. Halda áfram að lesa
Ég hélt alltaf að væri töluverður munur á pacifista og passivista. Ég hélt að pacifistar gætu verið aktivistar en passivistar ekki. Halda áfram að lesa
Af fávitum ég fjölda mikinn þekki
og fíflamjólkin hlaupin er í kekki.
Úr súpuskeið með gati sjaldan verður sopið kálið
og svo skal böl bæta
að bíða og hugsa málið. Halda áfram að lesa
Hvað eiga þjóðhöfðingjar, kvikmyndastjörnur, mótmælendur og vændiskonur sameiginlegt? Halda áfram að lesa