Því betur sem ég skoða mál Pauls Ramses, því meira ógeði fyllist ég. Á mótmælafundi í dag komu fram upplýsingar sem ég hef ekki séð í fjölmiðlum. Ég vil af því tilefni beina eftirfarandi spurningum til Útlendingastofnunar.
Greinasafn fyrir flokkinn: Allt efni
Sex orða meme handa Birni
Yfirklórið gengur fram af mér. Enginn þarf að óttast um líf sitt vegna kosningaþáttöku nei, í landi þar sem 1500 manns féllu á innan við tveimur mánuðum! Þá eru ótaldir þeir sem hverfa, sæta pyndingum og öðrum ofsóknum. Þetta er svona álíka gáfulegt og að tala um friðarferlið í Ísrael-Palestínu. Og það sem er nú kannski aðalmáli hér; umsóknin var ekki tekin fyrir. Menn eru að komast að þessu niðurstöðum eftir að hafa sent hann úr landi.
Það væri annars gaman að heyra múkk frá Jónínu Bjartmarz, sem hefur nú áður látið málefni flóttafólks til sín taka.
Hér er meme handa Birni:
Lítilla sanda, runkaði sér yfir reglugerðum.
Hittumst við Skuggaráðuneytið kl 12. Það þarf samt harðari aðgerðir en að veifa skilti.
Erindi þitt bíður afgreiðslu
Haukur hringdi heim til Ingibjargar Sólrúnar í gær. Hún er stödd á Ítalíu svo það þjónar víst litlum tilgangi að baka upp á hjá henni en hann bað um gsm símanúmer hennar eða persónulegt netfang. Hann fékk hvorugt en var bent á að senda póst á netfang utanríkisráðuneytisins. Halda áfram að lesa
Hvaða hin hlið?
Réttlætingar Útlendingastofnunar´, dæmi hver fyrir sig.
Og neinei, ég er ekki fúl út í neinn fyrir að vera ekki búinn að setja nafnið sitt á undrskriftalistann, það er bara virðingarvert að vilja kynna sér málin fyrst. Ég er hinsvegar hundfúl út í þá sem láta eins og þeim komi þetta ekki við, nenna ekki að kynna sér málið eða þora ekki að taka afstöðu.
Hér er grein sem allir ættu að lesa. Einkum þeir sem eru ekki búnir að skrifa undir. Kíkja líka á þetta takk.
Hér fyrir neðan má sjá svar dómsmálaráðherra sjálfs um meðferð Íslendinga á flóttafólki, dæmi hver fyrir sig. Halda áfram að lesa
Þú valdir þér þægilegt líf
Þú valdir þér þægilegt líf. Vinna, sinna fjölskyldunni, fara í sumarbústað, ræktina, halda árshátíð og afmæli, sitja á kaffihúsi, rækja áhugamál, hitta vini, vinna meira… Halda áfram að lesa
Á persónulegum nótum
Vont fólk er ekki endilega raðmorðingjar. Vont fólk er bara fólk sem er að mörgu leyti geðugustu manneskjur en skortir hæfileika til samlíðunar og hefur ekki sérstakan áhuga á því að setja sig í spor annarra. Halda áfram að lesa
Bætum Ramses við ímyndina
Ég veit að fullt af fólki brást við strax eftir sjónvarpsfréttir í gær og sendi Ingibjörgu Sólrúnu tölvupóst en hverjar eru líkurnar á því að hún hafi lesið þann póst fyrr en vélin var farin í loftið í morgun?
Í mínum kunningjahópi kom fram ein hugmynd um aðgerð sem hugsanlegt væri að næði eyrum ráðamanna ÁÐUR en Paul Ramses kveddi íslenska grund. Hún var sú að hlaupa út á flugbrautina og reyna að tefja vélina í því að fara í loftið. Þetta var eina hugmyndin sem ég hef ennþá séð sem átti nokkurn möguleika á að vekja athygli í tæka tíð. Ég er innilega stolt af þeim sem þó reyndu.