Sex orða meme handa Birni

Yfirklórið gengur fram af mér. Enginn þarf að óttast um líf sitt vegna kosningaþáttöku nei, í landi þar sem 1500 manns féllu á innan við tveimur mánuðum! Þá eru ótaldir þeir sem hverfa, sæta pyndingum og öðrum ofsóknum. Þetta er svona álíka gáfulegt og að tala um friðarferlið í Ísrael-Palestínu. Og það sem er nú kannski aðalmáli hér; umsóknin var ekki tekin fyrir. Menn eru að komast að þessu niðurstöðum eftir að hafa sent hann úr landi.

Það væri annars gaman að heyra múkk frá Jónínu Bjartmarz, sem hefur nú áður látið málefni flóttafólks til sín taka.

Hér er meme handa Birni:

Lítilla sanda, runkaði sér yfir reglugerðum.

Hittumst við Skuggaráðuneytið kl 12. Það þarf samt harðari aðgerðir en að veifa skilti.

One thought on “Sex orða meme handa Birni

  1. ————————————-

    ég skrópaði, enda hálf lurkum lamin í dag. voru margir?

    Posted by: baun | 6.07.2008 | 15:15:58

    ————————————-

    Og hvað gerðist?

    Posted by: Kristín | 6.07.2008 | 17:32:40

    ————————————-

    Ætli við höfum ekki verið um 50.

    Blöðin töluðu um að það hefðu verið um 40 manns í gær en það stenst nú ekki því 66 skráði sig á lista og ekki færri en 10 í viðbót höfðu þegar skrifað undir á netinu.

    Posted by: Eva | 7.07.2008 | 0:01:47

Lokað er á athugasemdir.