Pappírstætaraaðgerð á mánudagsmorgun

Falleg og fjölskylduvæn aðgerð er fyrirhuguð fyrir utan Landsbankann í Austurstræti í fyrramálið, frá klukkan 10 og eitthvað fram á dag.

Mætum öll og setjum reikningana okkar í pappírstætarann. Ef hátt settir bankamenn, sægreifar og stjórnmálamenn eiga að fá skuldir sínar afskrifaðar, þá á það sama að gilda um okkur öll.

Förum svo að Bessastöðum og mótmælum fjárlögunum eftir hádegið.

Hætta þessu rugli

Hversu lengi á það að viðgangast að lán séu tekin til að styðja þennan ónýta gjaldmiðil og að þeir verst settu séu beittir endalausum ‘hagræðingum’?

Flykkjumst að Bessastöðum og skorum á Óla að samþykkja ekki fjárlögin.

Sjá hér.

Mér finnst svo að þeir sem vilja ættu að nota tækifærið og krefjast þess líka að hann beiti sér gegn lántökum til að styrkja krónuna.

Bessastaðir á mánudag

Á mánudag kl 14 ætlar hópur fólks að Bessastöðum og skora á forsetann að samþykkja ekki fjárlögin.

Ríkisstjórnin ætlar að beita skurðarhnífnum af mestri hörku gagnvart þeim sem minnst mega sín og það samþykkjum við ekki.

Mætum öll og höldum uppi friðsamlegum mótmælum gegn niðurskurði í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og velferðarkerfinu.

Sveltum svínið

Á Þorláksmessu stendur aðgerðahópurinn ‘Sveltum svínið’ fyrir aðgerð sem allir geta tekið þátt í, hvar sem þeir eru á landinu, óháð aldri, líkamsstyrk, hugrekki, samfélagsstöðu eða efnahag. Enginn lendir í hættu á að verða fyrir ónæði af hálfu lögreglu því við erum ekki að fara að gera neitt sem nálgast það að ögra ramma laganna. Við þurfum ekki einu sinni að láta aðra vita af því að við séum með í þessu ef við óttumst að verða fyrir tuði út af því. Meira að segja Jón Kjartan hlýtur að leggja forpokun sína gagnvart mótmælaaðgerðum til hliðar fyrir þessa aðgerð. Halda áfram að lesa

Það virkar

Ég hef verið viðstödd mótmælaaðgerð þar sem reiðin magnaðist og að því kom að einhver missti stjórn á sér.

Þetta var ekkert í þá veru.

Við höfðum ákveðið að fara inn í Fjármálaeftirlitið en komum að læstum dyrum. Eggjum var kastað í húsið, og án þess að nokkur væri neitt nálægt því að að fara á límingunum, var húsið opnað. Eftir það gengum við rólega burt.

Skilaboðin eru skýr: Ef við ætlum okkur inn, þá förum við inn. Þeir sem settu okkur á hausinn með afglöpum sínum geta ekki falið sig bak við læstar dyr. Það eina sem þeir geta gert til að forðast að vera bornir út, er að fara sjálir. Það gerði Tryggvi Jónsson og nú mæli ég með því að Jón Sigurðsson verði næstur.

mbl.is Rúður brotnar