Fallöxi í sjónmáli

Í dag fékk Jón Ásgeir Jóhannesson snjóbolta í trýnið. Smáborgarar veina skríll og ofbeldiog hverju haldiði nú að þetta skili? Þeir harðsvíruðustu segja gott á’ ann.

Þótt sé fullmikið gert úr þessari frétt, verð ég að segja að mér finnst vægast sagt varhugavert að fara inn á þessa braut. Á hinn bóginn get ég alveg sagt ykkur hverju þetta skilar. Þessi snjóboltaaðgerð mun nefnilega virka eins og snjóbolti, þ.e. hlaða utan á sig mjög hratt. Fljótlega mun einhver gera alvöru árás á einhvern þessara manna og það verður til þess að þeir halda sig frá landinu.

Ég var á borgarafundi í kvöld þar sem fram kom að engin leið er til þess að koma lögum yfir þessa menn. Það er heldur ekki hægt að frysta eignir þeirra nema ákæra liggi fyrir og framferði þeirra er svo rosalega löglegt að það er illmögulegt að kæra þá og útilokað að sakfella þá. Ég spái því að dómstóll götunnar muni svara þessum gölluðu lögum okkar, með því að dæma útráarvíkingana og hugsanlega fleiri menn til útlegðar. Ég vona allavega að svo verði, því annars er bara tímaspursmál hvenær fallöxin verður tekin í notkun hér á landi.

Yfirlýsingin frá hópnum sem fór í FME

Pólitísk aðgerð þann 18. des 2008

Fjármálaeftirlitið hefur brugðist þeirri skyldu sinni að veita viðskiptalífinu aðhald og eftirlit. Sú vanræksla er ein af ástæðum þess að þúsundir Íslendinga sjá fram á atvinnuleysi, eignamissi og jafnvel gjaldþrot. Almenningur stendur varnarlaus gegn afglöpum fjármálaeftirlitsins en stjórnarmenn sitja þó sem fastast í hálaunastöðum sínum, staðráðnir í að firra sig ábyrgð.

Í dag komum við saman í húsi fjármálaeftirlitsins, í þeim tilgangi að raska ró þeirra sem hér hafa verið að dunda sér við eitthvað allt annað en að sinna störfum í þágu þjóðarinnar. Við krefjumst þess að stjórn fjármálaeftirlitsins segi af sér og gefi viðunandi skýringar á því hvernig yfirvofandi bankahrun og það sjónarspil sem átt hefur sér stað í viðskiptalífinu, gat farið fram hjá þeim.

Við sættum okkur ekki við að þeir sem bera ábyrgð á efnahagshruninu haldi áfram að mata krókinn á kostnað almennings. Við krefjumst þess að stjórn fjármálaeftirlitsins víki.

Bankaaðgerð á morgun

485701

Ég er nokkuð sátt við aðgerðina í morgun. Síðast vorum við um 25, í dag vorum við um 200. Ráðherrar laumuðust inn bakdyramegin. Kannski tekst okkur að stöðva þá alveg næst. Enginn handtekinn í þetta sinn. Löggan er að læra. Ósköp hlýtur þeim mörgum að líða illa yfir því að ´þurfa´ að bögga okkur frekar en bófana. Ég spái því að á þorranum muni nokkrir lögreglumenn segja af sér og ganga til liðs við okkur.

Bankaaðgerð fyrirhuguð á morgun. Mæting á Austurvelli kl. 9:00.

Þættinum hefur borist bréf

Spurt er hvort mótmælaaðgerðin núna á eftir verði ekki örugglega friðsamleg.

 Aðgerðin er kynnt sem friðsamleg og ég hef enga sérstaka ástæðu til að ætla að mótmælendur mæti með ofbeldi í huga. Ég vona sannarlega að lögreglan stilli sig líka. Sjálf mæti ég í þeim tilgangi að mótmæla friðsamlega og hygg ég að svo sé um flesta. Ég get þó ekki ábyrgst annað fólk og það er bara staðreynd að ef beinar aðgerðir eru hundsaðar, þá brjótast út óeirðir fyrr eða síðar, án þess að nokkur hafi boðað til þeirra. Það er líka staðreynd að tíðar ástæðulitlar handtökur og yfirgangur lögreglu, kallar á viðbrögð og getur leitt til átaka.

Ég get þessvegna ekki lofað því að allt verði nákvæmlega eins og ég sé það fyrir mér en markmiðið er að meina ráðherrum aðgang, án þess að það hafi í för með sér ofbeldi eða slys.

Fleiri fitulög til afskurðar

Bændur já, það er auðvitað rétt að láta þá fitugelti bera byrðarnar ásamt örykjum og öldruðum. Um að gera að flæma þá frá búskap og jafnvel úr landi sem hafa þó til að bera kunnáttu til að sjá okkur fyrir mat þegar ‘nýju bankarnir’ verða líka farnir á hausinn og ekki fleiri lán að fá frá útlöndum.

Í alvöru talað elsku þjóð, er ekki að verða tímabært að gera eitthvað róttækara en að halda ræður sem enginn hlustar á og halda kjafti þótt enginn hlusti á þögnina heldur?

mbl.is Hætt við vísitölutengingu í búvörusamningum

Bara ekki rétta leiðin

Það er svosem rétt að þúsundir manna hafa dáið vegna utanrísisstefnu Georgs en að kasta skó í hann eru náttúrulega bara skrílslæti.

Við verðum að gera greinarmun á forsetanum Bush sem var bara að vinna vinnuna sína þegar hann lét drepa mann og annan, og manninum Bush, sem hefur ekkert af sér gert.

Það er kannski skiljanlegt að maðurinn sé reiður vegna allra þessarra dauðsfalla og hörmunga en hann verður að skilja að þetta er bara ekki rétta leiðin til að mótmæla. Auk þess skemmir svona skrílsháttur málstaðinn fyrir friðsömu mótmælendunum sem eru búnir að halda ræður og bera skilti allt frá upphafi Íraksstríðsins. Nú er öll þeirra vinna unnin fyrir gýg, vegna þessa ofbeldismanns.

mbl.is Skómaðurinn í haldi