Fleiri fitulög til afskurðar

Bændur já, það er auðvitað rétt að láta þá fitugelti bera byrðarnar ásamt örykjum og öldruðum. Um að gera að flæma þá frá búskap og jafnvel úr landi sem hafa þó til að bera kunnáttu til að sjá okkur fyrir mat þegar ‘nýju bankarnir’ verða líka farnir á hausinn og ekki fleiri lán að fá frá útlöndum.

Í alvöru talað elsku þjóð, er ekki að verða tímabært að gera eitthvað róttækara en að halda ræður sem enginn hlustar á og halda kjafti þótt enginn hlusti á þögnina heldur?

mbl.is Hætt við vísitölutengingu í búvörusamningum

One thought on “Fleiri fitulög til afskurðar

  1. ——————————————————————–

    Það er lifandis löngu búið að flæma bændur úr sveitum,  loka skólunum fyrir börnin þeirra, öllum aðfaraleiðum, að ekki sé talað um landbúnaðarkvótana -sem enginn hefur talað um.

    Hildur Helga Sigurðardóttir, 16.12.2008 kl. 00:14

    ——————————————————————–

    Sammála – hlúum að bændum, ekki viljum við verða upp á heimsstjórnina komin með matarskammta, ef við höldum að IMF skilyrðin séu slæm, bíðið bara eftir þeim skilyrðum sem Agenda 21 og SÞ ætla að neyða upp á okkur með sultarvopninu.

    molta, 17.12.2008 kl. 20:37

Lokað er á athugasemdir.